Lífið

Bruce breytt í konu - Kris Jenner er brjáluð

Margrét Hugrún skrifar
Kris Jenner er hreint ekki sátt við uppátæki InTouch.
Kris Jenner er hreint ekki sátt við uppátæki InTouch. Vísir.is/Getty
Kris Jenner er alveg brjáluð eftir að bandaríska slúðurritið InTouch Magazine lét breyta mynd af fyrrum manni hennar Bruce Jenner.

Á myndinni má sjá Bruce með varalit, augnskugga og silkiklút um hálsinn en fyrirsögnin er 'Líf mitt sem kona'.

Menn hafa lengi velt kynhneigð Bruce fyrir sér og hvort hann langi til að fara í kynleiðréttingu en fegrunaraðgerðir ólympíukappans benda til þess að hann kjósi kvenlega andlitsdrætti umfram þá karlmannlegu.

Þau Kris og Bruce voru gift í 23 ár en í síðasta mánuði fór skilnaður þeirra formlega í gegn. Þau eiga saman dæturnar Kendall, sem er 19 ára, og Kylie sem er 17.

Kris, sem er 59 ára, segir ekkert til í sögusögnunum um Bruce og að honum sé sjálfum alveg sama og láti þetta allt sem vind um eyrun þjóta.

„Þegar hann fer í handsnyrtingu þá nota þær alltaf glært lakk á hann. Mergurinn málsins er einfaldlega sá að við (Kardashian fjölskyldan) seljum."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×