Fótboltastjörnur mæta á HM í handbolta í Katar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. janúar 2015 17:37 Pep Guardiola er með liðið sitt í æfingabúðum í Katar. Vísir/Getty
Heimsþekktar fótboltastjörnur verða meðal áhorfenda á HM í handbolta í Katar en liðsmenn Bayern München ætla meðal annars að mæta á setningarhátíð mótsins á morgun. Þetta kemur fram á heimasíðu IHF. Menn eins og Manuel Neuer, Jerome Boateng, Bastian Schweinsteiger, Mario Götze, Thomas Müller, Arjen Robben, Dante, Franck Ribery og Xabi Alonso verða því allir í stúkunni þegar Katar spilar sinn fyrsta leik á mótinu sem er annað kvöld á móti Brasilíu. Þjóðverjarnir Manuel Neuer, Jerome Boateng, Bastian Schweinsteiger, Mario Götze og Thomas Müller eiga allir góðar minningar frá HM í fótbolta sem fór fram í Brasilíu síðasta sumar enda varð þýska liðið heimsmeistari. Bayern München liðið er í æfingabúðum í Katar en vetrarfrí er nú í þýsku úrvalsdeildinni í fótbolta og flest liðin freistast til að æfa í heitari löndum. Danski þjálfarinn Michael Laudrup hefur einnig lofað að mæta á leiki í átta liða úrslitunum svo framarlega sem danska landsliðið verði enn með í keppninni en það eru mjög góðar líkur á því. Michael Laudrup þjálfar lið Lekhwiya frá Katar en hann kemst ekki á leikina í riðlakeppninni þar sem að hann fer með liðið sitt í æfingabúðir.
HM 2015 í Katar Þýski boltinn Mest lesið Luke Littler grét eftir leik Sport Skallaði þjálfara andstæðinganna eftir leik Fótbolti Jackson komst upp fyrir Eið Smára Enski boltinn Í beinni: Man. Utd - Bournemouth | Heitir gestir á Old Trafford Enski boltinn Heiður að vera keypt á metfé frá Val: „Stórt og gott skref“ Fótbolti Versta frumraun í úrvalsdeild? Körfubolti Í beinni: Everton - Chelsea | Hvað fá nýju eigendurnir að sjá? Enski boltinn Tapsár Tyson Fury: „Hann fékk jólagjöfina sína of snemma“ Sport Segist bara hafa óskað dómurunum gleðilegra jóla Körfubolti Michael Schumacher verður afi Formúla 1 Fleiri fréttir Viktor Gísli góður þegar Wisla Plock fór á toppinn Negla Elínar Klöru eitt af flottustu mörkum EM Kolstad vann toppslaginn Dana áberandi í síðasta leik ársins Leik Gísla og félaga í Magdeburg frestað vegna árásarinnar Rosalegur hæðarmunur á liðsfélögum íslensku strákanna Lærisveinar Guðmundar fara í frí með góðan sigur að baki Arnór frá Gumma til Arnórs Ósáttir Harðarmenn stofnuðu kröfu í heimabanka dómara Staðfesta 10-0 sigur ÍBV gegn Haukum Íslendingaliðið heldur áfram í undanúrslit Lærisveinar Guðjóns Vals úr leik í bikarkeppninni „Jólin eru ekki alveg eins afslöppuð“ Þyrfti kraftaverk til að Ómar yrði með á HM Þetta eru strákarnir sem spila fyrir Ísland á HM Snorri kynnti HM-hóp Íslands Lofaði konunni að flytja ekki til Íslands Framarar slógu út bikarmeistarana Afturelding í bikarúrslitin Dana Björg næstmarkahæst í sigri í toppslag Þórir gæti orðið þjálfari ársins í tveimur löndum „Ég er bara búinn að vera að jafna mig“ Stelpurnar hans Þóris tryggðu sér tvær milljónir hver Kvaddi á sama tíma og Þórir en sagði liðsfélögunum ekki frá því Guðmundur Bragi og félagar verða með á bikarúrslitahelginni Stjörnumenn fyrstir í bikarúrslitin Lærisveinar Gumma Gumm úr leik í bikarnum Bræðurnir góðir en Kolstad saknaði Sigvalda í tapi í Íslendingaslag Haukur og félagar unnu baráttuna um Búkarest Úrslitin í leik HK og Stjörnunnar standa Sjá meira