Innlent

„Hvar sjáið þið nunnur vera sprengjandi sig í tætlur?“

Margrét Friðriksdóttir, meðlimur í samtökum PEGIDA, ræðir samtökin og islam.
Margrét Friðriksdóttir, meðlimur í samtökum PEGIDA, ræðir samtökin og islam. Vísir
„Þetta eru ekki rasistasamtök. Þau undirstrika það að við viljum aðlagast. Þeir eru ekki á móti útlendinga- eða innflytjendastefnu og það er tekið sérstaklega fram [...] Þetta er mjög hófsamt og enginn rasismi í þessu,“ segir Margrét Friðriksdóttir, ein af rúmlega sex hundruð sem hefur skráð sig í öfgasamtökin PEGIDA á Íslandi.

Facebook-síðan PEGIDA Iceland var stofnuð síðasta sunnudag. Hreyfingin er þýsk að uppruna og berst gegn meintum íslömskum áhrifum í Evrópu. Margrét er kristin og ræðir trúmálin reglulega í þættinum Harmageddon á X-inu. Í þættinum í dag sagðist hún ekkert hafa á móti múslimum eða öðrum trúarbrögðum, en að þörf væri á fræðslu. Hinn vestræni heimur hefði brugðist í þeim málum. Þá sagðist hún vera á móti „íslam-væðingu“ og að við því þyrfti að sporna. 

Sér svæði einungis fyrir múslima

„Eygló Harðardóttir var að tala um það að henni fyndist vanta upp á fræðslu. Ég er að velta fyrir mér hvort Evrópuþjóðirnar hafi brugðist kannski í fræðslu við innflytjendur. Að kynna innflytjendur fyrir okkar lögum og reglum, í okkar vestræna heimi. Vegna þess að til dæmis í Frakklandi eru yfir 700 svæði þar sem engir aðrir en múslimar þora inn. Ekki einu sinni lögregla og slökkvilið. Þetta eru sér múslimasvæði sem enginn fer inn á nema múslimar,“ sagði Margrét.

„Fólki kennt að nota klósett“

Aðspurð hvort það skyti ekki skökku við að kalla saman einhvern ákveðinn hóp samfélags til þess að kenna þeim lög og reglur, sagði hún svo ekki vera. Um væri að ræða hinn þriðja heim og því sé mikilvægt að þau læri að aðlagast vestrænni menningu.

„Það er til þess að þjappa fólki saman, til að það skilji. Sums staðar í miðausturlöndum eða austurlöndum fjær – í flugvélum þar er ekki kennt á öryggisbúnaðinn. Þar er fólki kennt að nota klósett.“

Í þættinum ræddi Margrét um öfgahópa íslam og þá sagðist hún óttast. Aðspurð um kristna öfgahópa sagði hún: „Kristin öfgar – það eru nunnur, prestar og biskupar. Það eru kristnir öfgamenn. Hvar sjáið þið nunnur vera sprengjandi sig í tætlur einhvers staðar niðri í bæ?“

Þá sagði hún íslensku stjórnarskrána vera uppfulla af kristnum, góðum gildum, og taldi mikilvægt að nefna að hver sá sem er friðelskandi og kýs frið, kærleik, umburðarlyndi, tjáningarfrelsi og mannréttindi eigi að fordæma grimmdarverkin sem áttu sér stað í París og hafa átt sér stað um heiminn allan. „Við gætum kannski verið þjóð sem rýs upp gegn þessum myrkraverkum heimsins, öll sem eitt, burtséð frá trúarbrögðum,“ sagði Margrét.

Viðtalið við Margréti má hlusta á í heild hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×