Sport

Búið að semja við Pacquiao og beðið eftir Mayweather

Manny er afar vinsæll í heimalandi sínu, Filippseyjum.
Manny er afar vinsæll í heimalandi sínu, Filippseyjum. vísir/getty
Stórt skref var stigið í átt að risabardaga Manny Pacquiao og Floyd Mayweather eftir að Pacquiao náði samningum um bardagann.

Nú er allt undir Mayweather komið að láta þennan draumbardaga hnefaleikaáhugamanna verða að veruleika.

Hnefaleikaáhugamenn hafa látið sig dreyma um að sjá þessa tvo mætast í hringnum og það er núna eða aldrei enda eru kapparnir ekkert að yngjast.

Pacquiao er sama þó Mayweather fái stærri hlut af kökunni sem verður líklega sú stærsta í sögu hnefaleikanna ef þeir berjast. Hann vill bara berja á Mayweather. Sagt er að hann hafi samið um að fá 40 prósent af hagnaði kvöldsins.

Pacquiao hefur samþykkt að nota ákveðna hanska sem og að gangast undir lyfjapróf hjá bandaríska lyfjaeftirlitinu.

Box



Fleiri fréttir

Sjá meira


×