Enski boltinn

Eiður Smári lék allan leikinn í jafntefli gegn Liverpool

Eiður í baráttunni í dag
Eiður í baráttunni í dag vísir/getty
Liverpool og Bolton skildu jöfn 0-0 á Anfield heimavelli Liverpool í fjórðu umferð ensku bikarkeppninnar í dag. Liðin þurfa því að mætast á ný.

Þrátt fyrir nokkra yfirburði náði Liverpool ekki að skora gegn B-deildarliði Bolton og þurfa liðin því að mætast á nýjan leik á Reebok leikvanginum í Bolton.

Eiður Smári Guðjohnsen lék allan leikinn fyrir Bolton en hann byrjaði með Emile Heskey í framlínunni en fyrrum framherji Liverpool lék fyrstu 56 mínútur leiksins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×