Lífið

Fær gleraugu og sér mömmu í fyrsta sinn

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Louise brosir þegar hún sér mömmu.
Louise brosir þegar hún sér mömmu. Skjáskot/Youtube
Fallegt myndband af stúlku sem sér móður sína í fyrsta sinn gengur nú um netheima. Í því má sjá hina ungu Louise sem er albinói fá ný gleraugu. Sjón albinóa getur verið skert, vegna skorts á melatóníni.

Louise hafði aldrei séð móður sína þegar myndbandið var tekið.



Lousie hafði aðeins fundið lyktina af móður sinni, þekkti röddi hennar og hafði tengst henni með því að snerta á henni andlitið. Louise er greinlega tilfinningavera, því móðir hennar birti einnig myndband af viðbrögðum hennar þegar hún heyrir móður sína syngja lagið Amazing Grace. Svipbrigði stúlkunnar eru algjörlega óborganleg.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×