Lífið

Will Ferrell hent útaf körfuboltaleik: Kastaði bolta í klappstýru

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Hér má sjá lætin.
Hér má sjá lætin.
Leikarinn Will Ferrell var bókstaflega hent út af körfuboltaleik í Los Angeles í gærkvöldi, eftir að hann dúndraði körfubolta í andlitið á klappstýru. 

Reyndar var það svo að Ferrell ætlaði sér að gera þetta, því verið var að taka upp atriði í nýrri mynd sem hann leikur í, sem ber titilinn Daddy‘s Home, þar sem hann leikur ásamt Mark Wahlberg.

En þó svo að þetta hafi verið ákveðið fyrirfram er atriðið mjög fyndið, eins og sjá má hér að neðan.





Ferrell var staddur á leik Los Angeles Lakers og New Orleans Pelicans.

Í myndinni Daddy‘s Home leikur Ferrell yfirmann útvarpsstöðvar sem langar að verða stjúpfaðir barna konu sinnar, sem hún átti í fyrra sambandi. Mark Wahlberg leikur blóðföður barnanna. Karakterar þeirra eru gríðarlega ólíkir, Ferrell leikur mikinn rólyndismann en Wahlberg hálfgerðan ónytjung. Þeir keppast um athygli barnanna á gamansaman hátt.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×