Lífið

Paltrow í samfesting eftir Sólveigu Káradóttur

Adda Soffía Ingvarsdóttir skrifar
Gwyneth Paltrow í samfestingnum
Gwyneth Paltrow í samfestingnum Vísir/Getty
Leikkonan Gwyneth Paltrow mætti í þáttinn Whats What Happens Live á sjónvapsstöðinni Bravo Tv þann 15.janúar í glæsilegum samfesting frá Breska tískumerkinu Galvan. 

Einn stofnenda tískumerkisins Galvan og listrænn stjórnandi þess er hin íslenska Sólveig Káradóttir, dóttir Kára Stefánssonar, en merkið var stofnað í fyrravor.

Paltrow fyrir þáttinnVísir/Getty
Paltrow var stórglæsileg í samfestingnum, en hún hefur áður klæðst fatnaði frá merkinu. 

Sólveig, eða Sola Harrison eins og hún kallar sig ytra, er búsett Los Angeles ásamt eiginmanni sínum Bítlasyninum Dhani Harrison. Þau gengu í hjónaband sumarið 2012 og klæddist Sólveig þá kjól frá Stellu McCartney. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×