Lífið

Einstaklega góður Peter Griffin

Samúel Karl Ólason skrifar
Robert Franzese sem Peter Griffin.
Robert Franzese sem Peter Griffin.
Bandaríkjamaðurinn Robert Franzese hefur vakið mikla athygli á internetinu fyrir að herma eftir Peter Griffin úr Family guy þáttunum. Þegar hann fór á ComicCon í New York í fyrra fylgdi honum myndavél en á myndbandinu má sjá hve góður Peter Griffin hann er í raun.

Fyrsta skipti sem hann lék eftir Peter Griffin, var þegar hann var að taka út peninga í hraðbanka. Þegar peningarnir komu út sagði hann: „Guð minni góður ég vann,“ og þá var ekki aftur snúið.

Robert segist alltaf hafa verið góð eftirherma og er mjög góður að herma eftir röddum. Það má með sanni segja að það sé rétt hjá honum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×