Lífið

Billy Crystal þykir nóg komið af hommakeleríi á skjánum

MHG skrifar
"Obbobbobb, hingað og ekki lengra," gæti Billy verið að segja á þessari mynd.
"Obbobbobb, hingað og ekki lengra," gæti Billy verið að segja á þessari mynd. Vísir/Getty Images
Leikaranum geðþekka, Billy Crystal, finnst hommakelerí vera orðið allt of algengt í sjónvarpsþáttum og kvikmyndum.

Billy var fyrsti leikarinn sem lék samkynheigðan karakter í bandarískum sjónvarpsþáttum. Þetta var árið 1977 en þættirnir, sem voru gríðarlega vinsælir, hétu Löður og voru meðal annars sýndir í Ríkissjónvarpinu.

Billy, sem er nú 66 ára, er á þeirri skoðun að menn séu farnir að ota samkynhneigðinni aðeins of mikið fram. Honum finnst ekki að samkynheigð eigi að vera svona áberandi, að minnsta kosti ekki jafn "grafísk", eins og hann orðar það og á þannig við að honum þyki ekki viðeigandi að sjá karla á keleríi á skjánum.

Í viðtali við The Wrap segir Billy að stundum þyki honum þetta ganga aðeins of langt fyrir sinn smekk. „Ég ætla samt ekkert að nefna nein nöfn eða sérstaka þætti," segir hann.

Vísir/ Getty Images
„Ég vona bara að fólk misnoti ekki það sem hefur unnist í þessum efnum með því að ota þessu að okkur, svona upp að því marki að þetta verði bara hversdagslegur hlutur."

Billy viðurkenndi að hann hafi þurft að mæta allskonar leiðindum þegar hann lék hommann Jodie Dallas í Löður á sínum tíma.

„Þetta var mjög erfitt á þessum árum. Jodie var fyrsti homminn sem sást í sjónvarpsþáttaröð. Þetta voru allt aðrir tímar þarna árið 1977."

„Við lékum fyrir framan áhorfendur í sal. Þegar Jodie sagðist elska Bob, sem hann gerði nokkuð oft, þá fór salurinn að flissa taugaveiklað. Ég man að mig langaði oft til að stöðva bara upptökuna og spyrja salinn hvað væri eiginlega vandamálið."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×