Lífið

Bruce Jenner viðkvæmur fyrir slúðrinu - Neitar að tjá sig um kynleiðréttingu

Er hann í réttum líkama? Þegar stórt er spurt er fátt um svör.
Er hann í réttum líkama? Þegar stórt er spurt er fátt um svör. Vísir/Getty Images
Kardashian drottningin Kris Jenner er búin að fá sig fullsadda af kjaftasögum um að fyrrum eiginmaður hennar, Bruce, sé í röngum líkama og stefni á kynleiðréttingu.

Bruce, sem er sextíu og fimm ára, er búin að safna síðu hári eftir skilnaðinn. Hann fer líka reglulega í handsnyrtingu og lét lakka á sér neglurnar síðast með þeim afleiðingum að allt fór á hliðina í slúðurpressunni.

Bruce knúsar stjúpdóttur sína KimVísir/Getty Images
Kris ku vera mjög ósátt við slúðursögurnar og vill að Bruce tali við fjölmiðla. Hún vill að hann þvertaki fyrir þetta allt saman enda dugi ekkert annað til að þagga niður orðróminn.

Sjálfur hefur Bruce engann áhuga á að tala við fjölmiða og ætlar að halda sig frá kastljósi þeirra eins og hann hefur gert til þessa.

Í síðustu viku birti bandaríska slúðurritið forsíðumynd þar sem búið var að fótósjoppa Bruce eins og konu. Setja á hann farða og um hálsinn hafði hann silkiklút.

Margir áttu von á að Bruce myndi sýna þessu einhver viðbrögð en hann er samur við sig, segir ekki orð. Haft var eftir heimildarmanni Radar Online að málið væri mjög viðkvæmt fyrir Bruce:

„Í hvert sinn sem hún reynir að ræða þetta við hann þá þaggar hann niður í henni og neitar að ræða það. Þetta er mjög viðkvæmt mál fyrir honum."


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×