Sport

Kolbeinn Höður: Ætla fyrstur Íslendinga undir 21 sekúndu

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Kolbeinn Höður
Kolbeinn Höður vísir/daníel
Kolbeinn Höður Gunnarsson spretthlaupari ætlar sér stóra hluti á komandi árum og er búinn að setja sér markmið tvö ár fram í tímann.

Kolbeinn vann þrjú gullverðlaun á Meistaramóti Íslands í frjálsum íþróttum innanhús í Kaplakrika um helgina og sagði Arnari Björnssyni hvert hann stefnir.

„Íslandsmet í 200, gæti ekki verið sáttari. Þetta er lífið,“ sagði andstuttur Kolbeinn Höður nýbúinn að setja Íslandsmet í 200 metra hlaupi.

„Ég er í betra standi en ég bjóst við svona snemma á árinu. Ég bjóst svo sem alveg við að gera stóra hluti á árinu.

„Þetta veit allt á góða hluti. Vonandi heldur þetta áfram svona.

„Í sumar stefni ég á að verða fyrsti Íslendingurinn til að fara undir 21,“ sagði Kolbeinn Höður um markmið sitt í 200 metra hlaupi.

„2017 ætla ég að ná lágmarki á EM fullorðinna úti. Það er stefnan. Maður þarf að hafa skýr markmið til að komast áfram í þessu sporti,“ sagði Kolbeinn Höður en viðtalið allt má sjá hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×