Sport

Helga María undirbýr sig fyrir HM í Denver

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Helga María á fullri ferð í keppni
Helga María á fullri ferð í keppni vísir/getty
Skíðakonan Helga María Vilhjálmsdóttir undirbýr sig nú af kappi fyrir stórsvigs- og svigkeppni heimsmeistaramótsins í skíðaíþróttum.

Helga María æfir sig í Winter Park í Denver en hægt er að fylgjast með henni á Facebook síðu hennar eins og sjá má hér að neðan.

Tveir dagar eru í að hún haldi á keppnissvæðið í Vail og Beaver Creek í Colorado í Bandaríkjunum.

Helga María er þó ekki eini íslenski keppandinn á mótinu því þeir eru sex alls. Auk Helgu keppa Erla Ásgeirsdóttir, Freydís Halla Einarsdóttir, María Guðmundsdóttir, Einar Kristinn Kristgeirsson og Magnús Finnsson.

Stelpurnar keppa í stórsvigi á fimtudaginn og svigi á laugardaginn eftir viku. Strákarnir keppa í stórsvigi á föstudaginn og svigi á sunnudaginn kemur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×