Bílar

Skiljanlega mest seldi bíll heims

Finnur Thorlacius skrifar
Ford Focus er snotur útlits.
Ford Focus er snotur útlits. vísir/GVA
Reynsluakstur - Ford Focus

Mest seldi bíll í heimi hlýtur að hafa eitthvað gott fram að færa því fólk kaupir einfaldlega ekki vel á aðra milljón af slíkum bíl nema að hann sé góður. Þessi bíll er Ford Focus og hann var tekinn til kostanna til að finna út hvort blaðamaður var sammála öllum þessum kaupendum. Ford Focus hefur verið framleiddur frá árinu 1998, en þá leysti hann af hólmi ekki ófrægari bíl, þ.e. Ford Escort, sem seldist hér á landi í skipsförmum á árum áður, sem og um heim allan.

Ford Focus hefur verið mest seldi bíll í heimi í næstum 3 ár því á fyrri helmingi ársins 2012 tók hann framúr Toyota Corolla sem söluhæsta bílgerð heims og hefur haldið því síðan. Ford Focus er í C-stærðarflokki bíla, rétt eins og Volkswagen Golf, Toyota Auris og Mazda 3, svo einhverjir séu nefndir. Focus er nú af þriðju kynslóð, en hann hefur fengið nokkra andlitslyftingu með núverandi 2105 söluárgerð og margar góðar breytingar hafa verið gerðar á bílnum og hann hlaðinn meiri tækni.

Vél ársins 3 ár í röð

Það allra athyglisverðasta við Focusinn í dag er 1,0 lítra EcoBoost vélin sem fá má í honum. Þessi vél er hreint undur, enda margverðlaunuð og hefur verið valin vél ársins í heiminum 3 ár í röð. Það er í raun nær óhugsandi að svo lítil þriggja strokka vél skuli duga bíl í C-stærðarflokki, en það gerir hún sannarlega, enda 125 hestöfl. Í sjálfu sér er það ekki lengur orðið svo merkilegt að ná út svo miklu afli með svo lítið sprengirými, heldur er öllu merkilegra að hámarkstog hennar er á aðeins 1.400 snúningum. Það ætti eiginlega bara að vera hægt með dísilvél, en þetta er bensínvél. Ágætt er að hafa í huga að BMW tókst á níunda áratug síðustu aldar að framleiða 1.100 hestafla vél með 1,5 lítra sprengirými og var sú vél í Formúlu 1 bíl. Hún þurfti hinsvegar að snúast heil ósköp til að framkalla öll þessi hestöfl og hún var frek á sopann.

Það er þessi vél ekki, heldur er uppgefin eyðsla hennar 4,7 lítrar. Einnig er í boði 1,5 lítra og 150 hestafla EcoBoost vél og tvær gerðir 1,5 lítra dísilvéla, 95 og 120 hestafla og eyðir sú minni aðeins 3,8 lítrum. Allar þessar gerðir kosta þó meira en sá með litlu vélinni. Reynsluakstursbíllinn var einmitt með þessari litlu 1,0 lítra EcoBoost vél og óhætt er að hrósa henni í hástert og vera með því sammála þeim sem dæma um heimsins bestu vél. Afl hennar er alveg nægt fyrir Focus þó svo hún sé nú snarpari í litla bróðurnum Fiesta. Hún er hljóðlát og þýð og í reynsluakstursbílnum var hún tengd við lipra 6 gíra beinskiptingu.  

Fimur sem köttur

En hvernig er nú að aka Ford Focus með þessari vél? Jú, alveg prýðilegt en hann er engin spyrnukerra. Fyrsti gírinn er ógnarstuttur og því þarf að skipta strax á annan. Annar gír er hisnvegar afar notadrjúgur og eins fáranlegt og það hljomar væri nánast hægt að notast eingöngu við þá tvo fyrstu og þann sjötta þar sem tog vélarinnar er svo gott á lágum snúningi. Betra er þó að nota þá alla og í mælaborðinu er látið vita hvenær hentugast er að skipta upp. Þessar uppástungur stuðla að sem minnstri eyðslu og undirritaður hefur nú þann sið að fara einfaldlega ekki eftir þeim heldur láta hljóð og vinnslu ráða för og ef aka á skemmtilega er lengur dvalið í hverjum gír. Akstureiginleikar Ford Focus er frábærir og leit að öðru eins í bíl í þessum flokki.

Hann er fimur sem köttur á eftir bráð, fjöðrunin frábær og einhvernveginn líður ökumanni svo vel við aksturinn. Aðra eins aksturseiginleika má helst finna í Volkswagen Golf og Mazda 3 í þessum flokki, en gott ef Focus trónir ekki hæst. Það hjálpar náttúrulega aksturseiginleikunum hversu lítil og létt vel hans er og því er hann ári nefléttur. Þess vegna má henda honum í beygjurnar áreynslulaust og ekki er hliðarhallanum mikið fyrir að fara. Þess má geta að vélin er heilum 150 kílóum léttari en 2,0 lítra dísilvélin sem fá mátti í bílnum áður. Svo gleður það líka ökumann hve hljóðlátur bíllinn er og varla heyrist í litla kettlingnum undir húddinu þó hann hamist við að sturta hestöflum til framhjólanna. Gríðarvel gert hjá Ford þar.

Stendur sig vel í verðsamkeppni

Einn af fjölmörgum kostum Focus er að hann er fallegur að utan og sportlegur. Sérlega er nef hans vel heppnað en erfitt er að benda á neinn hluta hans sem ekki gleður augað. Hverjum finnst sitt um útlit bíla og því kannski ekki ástæða til að tjá sig of mikið um það, en greinarritari ók um á honum stoltur, bæði vegna útlits hans, sem og allra hinna kostanna. Að innan er Focus jafn laglegur og þar hafa verið gerðar jákvæðar breytingar með uppfærslunni á 2015 árgerð. Framsætin eru eftirtektarvert góð og áklæði og saumaskapur af vandaðri gerð. Merkilega gott rými er fyrir aftursætisfarþega og ekki þarf að kvarta undan 363 lítra skottrýminu.

Ford Focus er tæknilega vel búinn og í dýrari útfærslum hans bætist meira við. En hvernig skildi Focus standa sig í verðsamanburði í þessum stærðarflokki bíla? Jú, ári vel því hann er með þeim ódýrari. Það er aðeins Mazda 3 á 3.140.000 kr. og Kia C´eed á 3.240.777 sem eru örlítið ódýrari en Focus, sem fæst á 3.290.000 í ódýrustu útfærslu. Aðrir samkeppnisbílar, eins og Volkswagen Golf, Toyota Auris, Nissan Pulsar og Peugeot 308 eru allir dýrari. Ford Focus hefur lengi verið mjög góður bíll og góð kaup. Nú er hann bara orðinn ennþá betri og fæst samt á góðu verði.






×