Viðskipti erlent

Viðskiptavinum býðst að greiða með „ást“ á McDonalds

ingvar haraldsson skrifar
Skyndibitarisinn McDonalds hyggst bjóða viðskiptavinum í Bandaríkjunum völdum af handahófi að greiða fyrir vörur með „ást“ næstu daga.

Þetta kom fram í auglýsingu frá fyrirtækinu sem sýnd var á meðan Super Bowl, úrslitaleikur tímabilsins í NFL deildinni í amerískum fótbolta stóð yfir. Auglýsinguna má sjá í spilaranum hér að neðan.

Til dæmis verður viðskiptavinum boðið að hringja í mæður sínar og segjast elska þær, faðma einhvern eða dansa kjánalegan dans.

McDonalds hyggst taka við þessum óvenjulega greiðslumiðli frá og með deginum í dag og fram til 14. febrúar. Uppátækið er hluti af „I´m Lovin´ It“ markaðsherferð McDonalds samkvæmt frétt Time um málið.

Fleiri fréttir

Sjá meira

×