„Þið gleymduð einni milljón króna í fagnaðarlátunum og þið gleymduð líka verðlaunagripnum,“ sagði Sigmar Guðmundsson, ritstjóri Kastljóss, þegar hann truflaði viðtal við Maríu Ólafsdóttur söngkonu og Ásgeir Orra Ásgeirsson, úr StopWaitGo, í Kastljósi kvöldsins.
Sigmar kom færandi hendi og afhenti Ásgeiri Orra risavaxna milljóna króna ávísun sem þremenningarnir í StopWaitGo fengu í verðlaun fyrir að sigra Söngvakeppni Sjónvarpsins um helgina. Bæði ávísunin og verðlaunagripurinn gleymdust í Háskólabíói á úrslitakvöldinu á laugardag.
María sagðist ekki hafa vitað hver hefði tekið við verðlaununum þegar hún rétti þau frá sér til að taka sigurlagið undir lok kvöldsins.
Hægt er að horfa á viðtalið hér en það hefst á eftir 14 mínútur og 40 sekúndur.
María og strákarnir í StopWaitGo gleymdu milljón króna ávísun
Tengdar fréttir
María Ólafsdóttir fer í Eurovision
Hafði betur gegn Friðriki Dór í einvíginu
María Eurovisionfari: „Þetta kom virkilega á óvart"
Það var rafmögnuð spenna í Háskólabíói í gærkvöldi þegar tilkynnt var um hvert yrði framlag Íslendinga í Eurovision keppninni en hún fer fram í Austurríki í ár.