Íslenski boltinn

Sjáið mörkin í 1-1 jafntefli Vals og Stjörnunnar í kvöld | Myndband

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Vísir/Andri Marinó
Nýkrýndir Reykjavíkurmeistarar Vals gerði 1-1 jafntefli við Stjörnuna í fyrsta leik Lengjubikars karla í fótbolta í kvöld en leikið var í Egilshöllinni.

Valur og Stjarnan eru saman í þriðja riðli Lengjubikarsins en þar eru einnig ÍA, Haukar, Keflavík, Grindavík, Fjarðabyggð og Þór sem hefja öll leik um helgina.

Haukur Ásberg Hilmarsson kom Val í 1-0 á 49. mínútu í kvöld eftir skelfilegt úthlaup Sveins Sigurðar Jóhannessonar, markvarðar Stjörnunnar.

Haukur Ásberg setti pressu á markvörðinn sem hreinsaði boltann beint í varnarmann og fyrir fætur Hauks sem átti ekki í miklum vandræðum með að skora.

Pablo Punyed tryggði Stjörnunni eitt stig þegar hann jafnaði metin á 59. mínútu eftir laglegan undirbúning Heiðars Ægissonar.

Sporttv sýndi leikinn í beinni og hefur sett inn á Youtube myndband með mörkunum tveimur sem má sjá hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×