Einkanúmerið BIATCH: „Skrúfuðu þetta á að mér forspurðri“ Jóhann Óli Eiðsson skrifar 26. febrúar 2015 10:00 Númerið á bílum sem það hefur verið á í gegnum tíðina. myndir/maría edwardsdóttir „
Ég fékk númerið í afmælisgjöf þegar ég varð 25 ára gömul,“ segir María Edwardsdóttir aðspurð um einkanúmer sem hún hefur á bílnum sínum. Síðustu sextán ár hafa bílar hennar borið einkanúmerið BIATCH. „Vinir mínir gáfu mér plötuna í afmælisgjöf. Þá var ég einstæð móðir og þeim fannst númerið vera akkúrat það sem mig vantaði á þeim tíma.“Sjá einnig:Með einkanúmerið IM CEO: „Það er auðvitað dass af hroka í þessu“ Aðspurð segir hún að þetta hafi verið einhver einkahúmor innan vinahópsins. Skömmu fyrir afmælið hafi vinir hennar verið búnir að kaupa plötuna og skrúfa hana á bílinn hennar að henni forspurðri. María segir að vinir hennar hafi sett hana á aðeins fyrir afmælið sitt. Daginn fyrir það hafi hún og bróðir hennar út í búð og honum tókst að koma í veg fyrir að hún sæi hana. „Þegar við komum að búðinni beið ég eftir því að bíll æki út úr stæði og ætlaði að leggja í það í kjölfarið. Þá birtist bíll og rauk í stæðið á undan mér. Eðlilega fór ég út úr bílnum og reif aðeins kjaft. Samkvæmt bróður mínum varð manninum litið á bílnúmerið, síðan á mig og að endingu ákvað hann að aka á brott.“Vekur athygli í umferðinni Í umferðinni vekur platan heilmikla athygli. María segir að það komi ítrekað fyrir að fólk flauti á þau á ljósum. Það hafi komið fyrir oftar en einu sinni og oftar en tvisvar að fólk hafi stillt sér upp við bílinn sem númerið prýðir og smellt af sér mynd. „Stundum, þegar ég er á akstri, sjá unglingar bílinn og draga þá ályktun af númerinu að ég hljóti að vera jafnaldra þeirra. Það hefur mörgum brugðið í brún þegar þeir renna upp að hlið mér og sjá hálfmiðaldra konu með fullan bíl af börnum,“ segir María. Í gegnum tíðina hefur númeraplatan verið færð á milli bíla og alltaf vakið athygli. Mest er athyglin samt nú þegar númerið er á 44“ Patrol jeppa. „Hinn bíllinn okkar er sjö sæta Benz þar sem aftursætin vísa aftur. Tvíburarnir mínir sitja oft þar og fólk veifar oft og brosir til okkar. Það má alveg grínast með að við vekjum bros alls staðar í umferðinni.“ „Númerið verður smám saman partur af manni. Mér skilst að nú sé byrjað á því aftur að rukka fyrir einkanúmerin og ég veit ekki hvort ég tími því. Ef einhver hefur sérstakan áhuga á því að ég haldi því áfram getur sá hinn sami millifært á mig,“ grínast María með að lokum.
Tengdar fréttir Með einkanúmerið IM CEO: "Það er auðvitað dass af hroka í þessu“ "Ég þarf að leggja í P-stæði, því ég þarf að notast við hjólastól. Og þegar menn sjá gæja í hjólastól koma út úr bílnum, þá sljákkar í mönnum,“ segir Jón Gunnar Benjamínsson sem er með einkanúmerið IM CEO. 27. júní 2014 14:51 Mest lesið Skilnaður handan við hornið hjá Kanye og Biöncu Lífið Stofnar eigin útgáfu og byrjar í ruslinu Lífið „Fólk í kringum þessa einstaklinga er á nálum“ Lífið Kim vandræðaleg á tónleikum með nýrri eiginkonu Kanye Lífið Eins og þruma úr heiðskíru lofti Lífið Bergrún Íris og Kolbrún keyptu í Hafnarfirði Lífið Kúltúrkettir landsins létu sig ekki vanta í Portið Menning Náði að sættast við bróður sinn fyrir andlátið Lífið Stjörnulífið: Skvísustælar við bakkann og áminning um óöryggi Lífið Fylgst með tímaskeiði í lífi konu sem greinist með krabbamein Lífið Fleiri fréttir Stofnar eigin útgáfu og byrjar í ruslinu Skilnaður handan við hornið hjá Kanye og Biöncu Vann til verðlauna fyrir götubitann Bergrún Íris og Kolbrún keyptu í Hafnarfirði Fylgst með tímaskeiði í lífi konu sem greinist með krabbamein Gátu ekki talað saman fyrir syngjandi þjónum „Fólk í kringum þessa einstaklinga er á nálum“ Fanney Dóra og Aron gáfu syninum nafn Náði að sættast við bróður sinn fyrir andlátið Stjörnulífið: Skvísustælar við bakkann og áminning um óöryggi Eins og þruma úr heiðskíru lofti Sláturgerð, Sherry og súkkulaði á Hellu Myndaveisla: Eliza Reid og Ásdís Spanó létu sig ekki vanta í Núllið Covidsmitaður Al Pacino var nær dauða en lífi Dolly gefur 135 milljónir vegna Helenu Með húsaflutninga á heilanum Krakkatían: Ber, forsetar og prinsessur Sigmundur og hvolpurinn gleðjast yfir fylgi Miðflokksins Karlmennskuhlaðvarpið heyrir sögunni til „Ég var heppinn. En ekki hann“ „Það er önnur hver gella með í vörunum“ Gómsætar haustkökur að hætti Elenoru „Það braut ísinn að við hefðum deitað sama gaurinn“ Fréttatía vikunnar: Körfubolti, laxaastmi og stýrivextir Áslaug Arna fór í meðferð til að vinna bug á köngulóafælni Ólafur Ragnar skellti sér á sæþotu eftir langan dag Simmi Vill og Sunneva Einars létu sig ekki vanta á Jókerinn Vill að Menendez bræðrum verði veitt frelsi Skrúfaði titrarann í sundur til að forða nágrönnum frá ónæði Eminem verður afi Sjá meira
Með einkanúmerið IM CEO: "Það er auðvitað dass af hroka í þessu“ "Ég þarf að leggja í P-stæði, því ég þarf að notast við hjólastól. Og þegar menn sjá gæja í hjólastól koma út úr bílnum, þá sljákkar í mönnum,“ segir Jón Gunnar Benjamínsson sem er með einkanúmerið IM CEO. 27. júní 2014 14:51