Bílar

Eins lítra vél frá Kia

Finnur Thorlacius skrifar
Nýja 1,0 lítra vél Kia.
Nýja 1,0 lítra vél Kia.
Vélar fara sífellt minnkandi og fleiri og fleiri bílaframleiðendur hafa útbúið smærri bíla sína með vélum sem aðeins eru með 1,0 lítra sprengirými, þrjá strokka og forþjöppu.

Nú hefur Kia bæst í þennan hóp framleiðenda og ætlar að bjóða slíka vél í Kia Cee´d. Vélin sú er 118 hestafla og verður í boði frá og með fjórða ársfjórðungi þessa árs. Það sem veldur þeirri þróun að bílaframleiðendur smækka vélar sínar eru sífellt strangari reglur um hámarksmengun bíla.

Þessar vélar eru umtalsvert eyðslugrennri en þær vélar sem þær leysa af hólmi, þrátt fyrir svipað afl. Nýja 1,0 lítra vél Kia er sögð 10-15% eyðslugrennri en 1,6 lítra og 4 strokka vélin sem nú er í boði í Kia Cee´d. 






×