Heilsa

Kíktu ofan í klósettið

sigga dögg skrifar
Vísir/Getty
Litur þvagsins getur sagt þér ýmsilegt um heilsufar þitt.

Mataræði, sjúkdómar, vítamín, lyf, litarefni í sumum drykkjum og vökvaskortur geta litað þvagið og því er gott að fylgjast með litnum og ef það lítur óvanalega út að kanna þá hvort þú getir tengt það við eitthvað í mataræði þínu eða hvort hreinlega sé tími til að fara til læknis.

Illa lyktandi eða gruggugt þvag getur verið merki um einhvers konar sýkingu líkt og blöðrubólgu.

B-vítamín (ef þú tekur það inn sem vítamín) getur gert þvag skærgult en það getur einnig þýtt að þú drekkir ekki nóg af vökva.

Ef þú neytir mikið af rauðrófum þá getur það litað þvagið bleikt.

Vísir/Skjáskot
Læknamiðstöð í Cleveland í Ohio í Bandaríkjunum tók saman litaspjald yfir þvag sem gott getur verið að renna yfir og hafa til hliðsjónar við næstu salernisferð.


Tengdar fréttir

Hjálp, þvagið mitt er blátt!

Það hlýtur að vera óþægileg tilfinning að horfa ofan í klósettið og sjá það verða öðruvísi á litinn en venjulega þegar maður er að kasta af sér vatni. Ég tala nú ekki um ef því fylgja miklir verkir og óþægindi sem gera alla þessa upplifun hálfu verri

Heilbrigði hægðanna

Litur og áferð hægðanna geta sagt þér ansi margt um heilbrigði líkamans.

Útferð

Eitt af tabú umræðuefnum um líkamann.








×