Innlent

Tugir í vanda á Holtavörðuheiði

Bjarki Ármannsson skrifar
Færðin á Holtavörðuheiði.
Færðin á Holtavörðuheiði. Mynd/Steingrímur Þórðarson
Björgunarsveitir beggja vegna Holtavörðuheiðar hafa verið kallaðar til aðstoðar vegna ófærðar og lítils skyggnis. Margir bílar sitja þar fastir og samkvæmt tilkynningu Landsbjargar er talið að tugir manna séu í vanda á heiðinni.

Fréttastofa RÚV segir að umferðarslys hafi átt sér stað á heiðinni. Einnig er búið að loka Bröttubrekku vegna ófærðar. Nánari upplýsingar um færð um land allt má finna á vef Vegagerðarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×