Lífið

Sjáðu framlag Noregs í Eurovision

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Mørland & Debrah Scarlett fara til Vínarborgar.
Mørland & Debrah Scarlett fara til Vínarborgar.
Fulltrúar Noregs í Eurovision voru valdir í úrslitakeppni Melodi Grand Prix í gærkvöldi. Sigurvegararnir voru þau Mørland & Debrah Scarlett með lagið A Monster Like Me.

„Það snertir mig að fólk skuli hrífast af laginu," segir hann í samtali við NRK eftir að búið var að útnefna hann sigurvegara.

„Ég trúi ekki að við höfum unnið," sagði Debrah.

Noregur hefur þrisvar sinnum borið sigur úr bítum í Eurovision en náð talsvert oftar inn á topp tíu. Alexander Rybak, sem vann fyrir hönd Noregs árið 2009, á enn stigametið í keppninni en hann fékk samtals 387 stig. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.