Bíó og sjónvarp

Myndskeið úr æsku Kurt Cobain notuð í nýrri heimildarmynd

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Kurt Cobain, söngvari Nirvana.
Kurt Cobain, söngvari Nirvana. Vísir/Getty
Stikla fyrir nýja heimildarmynd um söngvara Nirvana, Kurt Cobain, var birt í dag. Myndin heitir Montage of Heck og er leikstýrt af Brett Morgen. Hún var frumsýnd á Sundance-kvikmyndahátíðinni í janúar síðastliðnum.

Fjölmargar heimildarmyndir hafa verið gerðar um Cobain en Montage of Heck er sú fyrsta sem gerð er með samþykki fjölskyldu og vina söngvarans.

Auk þess hafði leikstjórinn fullt leyfi til að nota tónlist Nirvana í myndinni, bæði útgefið og óútgefið efni. Þá eru Courtney Love, fyrrverandi eiginkona Cobain, og dóttir þeirra, Frances Bean, eru á meðal framleiðenda myndarinnar.

Í heimildarmyndinni er talað við þá sem stóðu honum næst og birt myndbönd sem aldrei hafa komið fyrir sjónir almennings, meðal annars úr æsku Cobain.

Kurt Cobain lést fyrir eigin hendi, af völdum skotsára, árið 1994, þá 27 ára gamall.

Stikluna úr myndinn má sjá hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.