Tónlist

Rokkhátíð alþýðunnar kemur út úr skemmunni

Birgir Olgeirsson skrifar
Samstarfssamningur Aldrei fór ég suður og styrktaraðila var undirritaður á baki fallega smiðsins, Péturs Magnússonar, á Reykjavíkurflugvelli í dag.
Samstarfssamningur Aldrei fór ég suður og styrktaraðila var undirritaður á baki fallega smiðsins, Péturs Magnússonar, á Reykjavíkurflugvelli í dag. Vísir/Kolbeinn Tumi.
Forsvarsmenn Aldrei fór ég suður buðu til blaðmannafundar á Reykjavíkurflugvelli í dag þar sem kynntir voru listamenn og helstu styrktaraðilar hátíðarinnar í ár sem haldin verður á föstudeginum langa(3. apríl) og laugardeginum fyrir páska(4. apríl).

Boðið var upp á léttar veitingar og tilkynnti Hálfdán Bjarki Hálfdánsson, sem er í stjórn hátíðarinnar, að aðstandendur hátíðarinnar ætluðu ekki að reyna vera með nein gestalæti og gefa þeim sem sóttu þennan blaðamannafund hákarl og harðfisk heldur var boðið upp á það fæði sem Ísfirðingar þekkja hvað best, örbylgjuhitaða hamborgara frá Hamraborg og kroppsælur úr Krílinu sem skoruðu afar hátt í vali á besta þynnkubitanum hér á Vísi fyrir skemmstu.

Sjá einnig: Saga kroppsælunnar: Þynnkubiti sem er allra meina bót

Þá var undirritaður samstarfssamningur við helstu styrktaraðila hátíðarinnar í ár en þeir eru Flugfélag Íslands, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, Landsbankinn, Orkusalan, Orkubú Vestfjarða og Samskip. Samningurinn var sem áður fyrr undirritaður á baki fallega smiðsins, Péturs Magnússonar, sem margir þekkja sem kynni hátíðarinnar.

Birna Jónasdóttir, rokkstjóri Aldrei fór ég suður, heldur hér samstarfssamningnum á baki fallega smiðsins.Vísir/Kolbeinn Tumi
Aldrei fór ég suður var fyrst haldin árið 2004 í sushiverksmiðju Sindrabergs á Ísafirði og hefur undanfarin 11 ár vaxið fiskur um hrygg. Síðastliðin ár hefur hún verið haldin í í skemmunni að Grænagarði í Skutulsfirði á föstudeginum langa og laugardeginum fyrir páska en í ár verður sú nýbreytni að aðeins verða tónleikar í skemmunni á laugardeginum.

Birna Jónasdóttir, rokkstjóri Aldrei fór ég suður, kynnti þessi áform betur á blaðmannafundinum og sagði að skipuleggjendum hátíðarinnar hefði þótt synd að fela allan þann fjölda sem sækir hátíðina í þessari skemmu og því hefði verið ákveðið að flytja hátíðina inn á eyri á Ísafirði á föstudeginum langa og fá þannig meira líf í bæinn. 

Meðal annars verða órafmagnaðir tónleikar í Ísafjarðarkirkju á föstudeginum langa, uppistand í Alþýðushúsinu og útitónleikar við gistiheimilið og veitingastaðinn Húsið. 

Þeir tónlistarmenn sem koma fram í Ísafjarðarkirkju eru Himbrimi, Valdimar Guðmundsson, Júníus Meyvant og Gudrid Hansdóttir.

Um uppistandið í Alþýðuhúsinu sjá Saga Garðarsdóttir, Hugleikur Dagsson og Kæsti safírinn.

Aðrir listamenn sem koma fram á hátíðinni í ár eru Mugison, Prins Póló, Emmsé Gauti, Pink Street Boys, Hemúllinn, Rythmatik, Sigurvegarar músíktilrauna, Amabadama, Boogie Trouble og stuðmaðurinn Valgeir Guðjónsson sem er sérlegur heiðursgestur hátíðarinnar.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.