Innlent

Gjaldkeri starfsmannafélags ákærður fyrir fjárdrátt

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Brotin hófust um mánuði eftir að maðurinn var kjörinn gjaldkeri Sóma.
Brotin hófust um mánuði eftir að maðurinn var kjörinn gjaldkeri Sóma. Vísir/Valli/Pjetur
Lögreglustjórinn á Austurlandi hefur gefið út ákæru á hendur fyrrum gjaldkera Sóma, starfsmannafélags Alcao Fjarðaál, fyrir fjárdrátt og umboðssvik. Brotin nema tæplega átta milljónum króna en áætlað er að maðurinn hafi notað rúmar sex milljónir til eigin nota. Austurfrétt hefur ákæruna undir höndum og greinir frá.

Vísir greindi frá því í apríl í fyrra að lögreglan á Eskifirði hefði málið til rannsóknar. Þá hafði starfsmönnum álversins nýlega verið tilkynnt um fjárdráttinn og að manninum hefði verið vikið frá störfum. Meintur fjárdráttur hófst sumarið 2013, rúmum mánuði eftir að maðurinn tók við stöðu gjaldkera, og stóð yfir til þar til í mars 2014.

Ákært er fyrir fjárdrátt upp á 5,5 milljónir króna en um er að ræða 35 færslur af reikningi starfsmannafélagsins á bankareikninga í eigin eigu. Er manninum gefið að sök að hafa millifært allt frá 21 þúsund krónum upp í eina milljóna króna. Þá er í tólf liðum ákært fyrir umboðssvik þar sem þar sem gjaldkerfinn millifærði af reikningi starfsmannafélagsins án heimildar stjórnar.

Meðal millifærslna af reikningi Sóma eru 32 tónleikamiðar, níu fartölvur sem voru gefnar grunnskólum í Fjarðabyggð og bolti og tæki til knattspyrnuæfinga. Þá er maðurinn talinn hafa keypt hluti í eigin þágu á borð við fartölvu, síma auk 200 þúsund króna persónulegrar gjafar til vinkonu hans.

Saksóknari fer fram á að gjaldkerinn fyrrverandi verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar. Þá fer Sómi fram á greiðslu skaðabóta upp á 6,1 milljón króna.

Sagði stjórnina reyna að klína á sig hærri upphæð

Gjaldkerinn fyrrverandi sagði í samtali við Vísi í fyrra að hann viðurkenndi hluta af fjárdráttnum, alls upp á 4,5 milljónir króna. Hins vegar væri stjórn Sóma að reyna að klína á sig umtalsvert hærri upphæð.

Nánar um viðbrögð gjaldkerans þegar málið kom upp hér.

Ákærði mætti ekki í þingfestingu málsins á dögunum. Fyrirtaka í málinu er á dagskrá í Héraðsdómi Austurlands eftir páska.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×