Arnór Ingvi lagði upp tvö mörk Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. apríl 2015 18:58 Arnór Ingvi Traustason. Mynd/Heimasíða IFK Norrköping
Keflvíkingurinn Arnór Ingvi Traustason lagði upp tvö mörk fyrir félaga sína í glæsilegum útisigri IFK Norrköping í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. IFK Norrköping vann 3-0 sigur á Halmstads BK á Örjans Vall í Halmstad og hefur þar með fjögur stig eftir fyrstu tvær umferðirnar. Arnór Ingvi Traustason lagði upp skallamark fyrir Filip Dagerstål á 44. mínútu og átti einnig stoðsendinguna þegar Emir Kujovic skoraði á 62. mínútu en þetta voru tvö fyrstu mörk liðsins í leiknum. Emir Kujovic skoraði síðan þriðja markið úr vítaspyrnu á 75. mínútu og þannig urðu lokatölurnar í leiknum. Arnór Ingvi var út á vinstri kanti hjá Norrköping-liðnu og spilaði allan leikinn. Jón Guðni Fjóluson og Rúnar Már Sigurjónsson voru báðir í byrjunarliði GIF Sundsvall sem vann 3-2 útisigur á Åtvidabergs FF. Sundsvall komst í 2-0 og 3-1 í leiknum. Jón Guðni spilaði allan leikinn í miðri vörninni og Rúnar Már var inn á miðri miðjunni hjá liði Sundsvall sem tapaði í fyrstu umferðinni. Haukur Heiðar Hauksson var allan tímann í hægri bakverðinum þegar AIK gerði markalaust jafntefli á útivelli á mæti sænsku meisturunum í Malmö. AIK hefur fjögur stig eftir fyrstu tvo leiki sína.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Martröð hjá Manchester United í leikhúsi draumanna Enski boltinn Luke Littler grét eftir leik Sport Skallaði þjálfara andstæðinganna eftir leik Fótbolti Jackson komst upp fyrir Eið Smára Enski boltinn Everton hjálpaði sér og nágrönnunum í Liverpool Enski boltinn Í beinni: Tottenham - Liverpool | Stórleikur í London Enski boltinn Heiður að vera keypt á metfé frá Val: „Stórt og gott skref“ Fótbolti Versta frumraun í úrvalsdeild? Körfubolti Tapsár Tyson Fury: „Hann fékk jólagjöfina sína of snemma“ Sport Michael Schumacher verður afi Formúla 1 Fleiri fréttir Semur við félagið sem bæði mamma og pabbi spiluðu fyrir Everton hjálpaði sér og nágrönnunum í Liverpool Í beinni: Tottenham - Liverpool | Stórleikur í London Martröð hjá Manchester United í leikhúsi draumanna Drottning Lengjudeildarinnar ætlar að vera með Fram í Bestu Öruggt hjá Real Madrid gegn Sevilla Liverpool liðið ferðast mest yfir jólin Fjórar knattspyrnukonur handteknar Jackson komst upp fyrir Eið Smára Heiður að vera keypt á metfé frá Val: „Stórt og gott skref“ Sara Björk á skotskónum í Sádi-Arabíu Skallaði þjálfara andstæðinganna eftir leik Endar Rashford í Sádí-Arabíu? Saka yfirgaf Selhurst Park á hækjum Bellingham tryggði Sunderland sigurinn Atletico rændi sigrinum í blálokin Juric tekinn við Southampton Arsenal valtaði yfir Crystal Palace Isak með þrennu í stórsigri Newcastle Haaland: Ég hef ekki verið nógu góður Gumma komin heim eftir átta ára fjarveru Guardiola: Við erum í vandræðum með að skora Lengi getur vont versnað hjá Man. City Hólmbert og félagar náðu ekki að vinna fallslaginn Nú verður hægt að vinna Beckenbauer bikarinn Messi með eigin treyjur upp um alla veggi á heimilinu Logi Ólafs kveður eftir áratugastarf í MH „Orð geta ekki lýst því hversu eyðilagður ég er“ Fernukonan komin heim og áritar í Smáralind í dag Englendingar syrgja mann úr heimsmeistaraliðinu frá 1966 Sjá meira