Lífið

Hlustaðu á Regínu Ósk syngja lagið sem hún vildi að hefði verið samið fyrir sig

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Regína Ósk tók sigurlagið úr Eurovision árið 2013, danska lagið Only Teardrops, þegar hún mætti sem gestur í nýjasta þáttinn af Eurovísi. Hún segist vilja að lagið hafi verið samið fyrir hana.

„Ég sagði einhvertíman að ég hefði viljað að þetta hefði verið samið fyrir mig,“ segir Regína Ósk í þættinum. „Þetta er eitt af mínum uppáhalds, svona af nýlegum lögum.“

Hún er reynslubolti þegar kemur að Eurovision en hún hefur keppt þrisvar sem bakrödd og einu sinni sem aðalrödd. Hún fór fyrst út árið 2001, þar sem hún sögn bakraddir í laginu Angel, en síðast fór hún út með Eurobandinu árið 2008, með lagið This is my life.

Hægt er að hlusta á flutning Regínu Óskar á Teardrops í spilaranum hér fyrir ofan en hlusta má á Eurovísi í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan. Með Regínu Ósk í laginu er Svenni Þór gítarleikari.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.