Bíó og sjónvarp

Fúsi fær frábæra dóma úti í Danmörku

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Gunnar Jónsson sem Fúsi
Gunnar Jónsson sem Fúsi
Fúsi fær heilar sjö stjörnur á danska kvikmyndavefnum philm.dk hjá gagnrýnandanum Tobias Lynge Herler. „Dagur Kári minnir á sig með sinni fjórðu kvikmynd heima á Íslandi þar sem hann kynnir einfalt meistarverk frá norður Atlantshafi sem snertir við áhorfendum.“

Allt frá upphafi myndarinnar dylst áhorfendum ekki að hér er á ferðinni djúp og tilfinningarík mynd, þar sem Gunnar Jónsson í stóra burðarhlutverkinu er hlaðinn þeirri djúpu innlifun sem þarf til þess að bera myndina uppi.“

Eins og minnst er á í dómnum þá skrifaði Dagur Kári handrit myndarinna sérstaklega fyrir Gunnar Jónsson og er gagnrýnandinn á því að enginn annar hefði getað leyst þetta stóra verkefni nema Gunnar enda nær hann einstökum samruna við hlutverkið sem dregur myndina alla áfram á einstakan máta. Hinn feimni, gjafmildi og heillandi Fúsi heillar gagnrýnandann s.s. gersemlega upp úr skónum.

Gagnrýnandinn fer einnig fögrum orðum um aðra þætti myndarinnar og hefur á orði að hér sé á ferðinni hlýtt og manneskjuleg mynd sem er uppfull af ljúfsárri fyndni en dramtísk í senn.


Tengdar fréttir

Ég er bara lítill strákur í hinum stóra heimi kvikmyndanna

Gunnar Jónsson leikari er í aðalhlutverki í nýrri kvikmynd Dags Kára, Virgin Mountain eða Fúsi, sem verður frumsýnd í Berlín um helgina. Hann segist aldrei hafa fengið jafn langan tíma til þess að undirbúa sig fyrir eitt hlutverk.

Fúsi fæddur á flugvelli

Dag Kára Péturson hafði lengi langað til þess að vinna með leikaranum Gunnari Jónssyni og varð það að veruleika í Fúsa sem frumsýnd er í dag á Íslandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.