Lífið

Svona biður maður pírata: Myndband af umtalaðasta bónorði ársins birt

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Helgi Hrafn og Inga Auðbjörg eru nú trúlofuð.
Helgi Hrafn og Inga Auðbjörg eru nú trúlofuð.
Inga Auðbjörg Kristjánsdóttir bað þingmannsins Helga Hrafns Gunnarssonar þann 4. apríl síðastliðinn þegar þau voru í ferð saman í Þýskalandi. Hún gerði það á heldur óvenjulegan máta en hún gerði það með svokölluðu „flashmob-i.“

 

Í myndbandi sem nú er á YouTube má sjá hvernig þetta atvikaðist en Helgi Hrafn sést standa úti í glugga og fylgjast með herlegheitunum. Í lok dansins lyftir fólkið upp klæðum sínum og saman mynda þau orðin „Vilt þú giftast mér?“ Í samtali við bleikt.is segir hún að það sé af feminískum ástæðum sem hún hafi beðið Helga en ekki öfugt.

Helgi sagði já og eru þau Inga Auðbjörg nú trúlofuð.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.