Samningar vegna Þeistareykjavirkjunar undirritaðir Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 13. apríl 2015 15:34 Frá undirritun samninganna í hádeginu í dag. Vísir/Stefán
Landsvirkjun undirritaði í dag samninga við LNS Sögu vegna byggingu stöðvarhúss og veitna við Þeistareykjavirkjun. Undirritunin markar upphaf framkvæmda við virkjunina en ef allt gengur samkvæmt áætlun munu byggingarframkvæmdir fara fram á þessu ári og því næsta. Stefnt er svo að því að Þeistareykjastöð verði tengd Landsneti árið 2017 og hefji framleiðslu inn á kerfið í október sama ár. Þeistareykjajörð er gömul landnámsjörð sem liggur suðaustur af Húsavík og er nú í eigu Þingeyjasveitar. „Þetta er einkar ánægjulegur áfangi fyrir okkur hjá Landsvirkjun. Við höfum lagt mikla vinnu í undirbúning Þeistareykjavirkjunar í mörg ár og allan þann tíma lagt áherslu á góða umgengni við umhverfi og sátt við samfélagið,“ sagði Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar við undirritun samninganna í dag. Heildarfjárhæð þeirra vegna byggingu stöðvarhúss og veitna er um 6,6 milljarðar króna, en áætlanir gera ráð fyrir að heildarkostnaður við fyrsta áfanga virkjunarinnar nemi á bilinu 20 til 24 milljarða króna. Þegar mest verður munu hátt í 200 starfsmenn vera við vinnu á svæðinu á framkvæmdatímabilinu.
Mest lesið „Enginn kvartað yfir því þegar ég hef skúrað“ Atvinnulíf Frestun sölu Íslandsbanka jákvæð fyrir markaðinn Viðskipti innlent Kormákur og Skjöldur flytja í Brynjuhúsið eftir algjöra yfirhalningu Viðskipti innlent Óljóst hvort breytingarnar bjargi rekstri Play Viðskipti innlent Play í frjálsu falli Viðskipti innlent Sölunni slegið á frest Viðskipti innlent Hagkaup hættir sölu á Sodastream í kjölfar mótmæla Viðskipti innlent Ekki trompast við fólk í vinnu eða á fundum Atvinnulíf „Síðan kemur í ljós að við erum í gjörólíkum störfum“ Atvinnulíf „Opinberi geirinn er að breytast og þar þarf mikinn fjölda verkefnastjóra“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Frestun sölu Íslandsbanka jákvæð fyrir markaðinn Sölunni slegið á frest Kormákur og Skjöldur flytja í Brynjuhúsið eftir algjöra yfirhalningu Play í frjálsu falli Semja við flugfélög í Færeyjum og á Grænlandi Hagkaup hættir sölu á Sodastream í kjölfar mótmæla Frigus fór fýluferð í Landsrétt Óljóst hvort breytingarnar bjargi rekstri Play Úlfur Þór til Firma lögmanna Eins og AirBnb og Uber en fyrir tónlistarkennslu Tvískiptur fasteignamarkaður og hækkandi vaxtabyrði „Play verður áfram íslenskt“ Sækja um leyfi á Möltu Herdís hefði frekar viljað halda vöxtum óbreyttum Hér og nú fjölgar starfsmönnum Samið um 800 íbúðir á Ásbrú Allsherjarinnköllun á krabbameinsvaldandi leikföngum Rotovia kaupir mexíkóskt fyrirtæki Íbúðaverð lækkar í fyrsta sinn frá janúar Sannfærður um að niðurstaðan verði Lyfjavali í hag Hagkerfið nái andanum og spá um tveggja prósenta hagvexti næstu ár Bein útsending: Ný þjóðhags- og verðbólguspá Landsbankans Hefur lokið störfum hjá Viðreisn en vill vera á lista Ráðist í athugun hjá Skel vegna meintrar markaðsskiptingar Icelandair í samstarf við þjóðarflugfélag Portúgals Nýir eigendur Skagans stefna á að hefja starfsemi í nóvember Segir aðför Eflingar með ólíkindum Áfram engar loðnuveiðar Rekstrarfélag Ítalíu á Frakkastíg gjaldþrota Segja fullyrðingar borgarfulltrúa um Carbfix ekki standast Sjá meira