Hvassahraun skoðað undir alþjóðaflugvöll
Hvassahraun í útjaðri Hafnarfjarðar hefur af og til verið nefnt undir innanlandsflugvöll en mætt þeim mótrökum að það tæki því ekki að gera nýjan flugvöll svo nálægt Keflavík. Innan Rögnunefndar er nú horft á Hvassahraun í nýju ljósi, meðal annars vegna áforma, sem Isavia kynnti nýlega, um tugmilljarða króna framkvæmdir á Keflavíkurflugvelli með stækkun flugstöðvar, endurnýjun flugbrauta og nýrri flugbraut.
Spurningarnar sem menn vilja fá svarað eru mjög áhugaverðar, eins og þessar: Getur verið að kostnaður við nýjan alþjóðaflugvöll í Hvassahrauni sé jafnvel minni heldur en við hraðlest til Keflavíkur? Og ennfremur: Getur verið að sá kostnaður sem Isavia áformar að leggja í þróun Keflavíkurflugvallar á næsta aldarfjórðungi slagi jafnvel upp í nýjan flugvöll?
Og hví ekki að slá tvær flugur í einu höggi, höggva á hnútinn í Vatnsmýri og fá um leið millilandaflugvöll mun nær mesta þéttbýli landsins, aðeins sex til átta kílómetra frá útjaðri byggðar í Hafnarfirði. Mislæg gatnamót eru til staðar á Reykjanesbraut út í Hvassahraun en þar sýna skiltin 26 kílómetra vegalengd að Leifsstöð og 22 kílómetra inn í miðborg Reykjavíkur.
Menn sjá fyrir sér flugvöll sem gæti byrjað sem innanlandsvöllur með hluta af millilandaflugi en myndi síðan þróast upp í að verða stærri. Hluti flugs til Norðurlanda og Bretlands færi jafnvel strax á nýjan völlinn til að létta álagi af Keflavíkurflugvelli. Hvassahraunsvöllur myndi síðan þróast upp í að verða aðalflugvöllur landsins.
Rögnunefnd er meðal annars að láta gera ítarlegt mat á veðurfari, eins og sviptivindum frá Reykjanesfjallagarði, og jarðfræði Hvassahrauns og hættu á eldvirkni. Fyrstu niðurstöður veðurfarsrannsókna liggja fyrir og benda til að þetta sé ekki slæmur kostur, samkvæmt upplýsingum fréttastofu.
Formaður nefndarinnar, Ragna Árnadóttir, vill ekki tjá sig um starf nefndarinnar að öðru leyti en því að Hvassahraun sé einn af fimm flugvallarkostum til skoðunar. Hinir séu Bessastaðanes, Löngusker, Hólmsheiði og breyttar útfærslur flugvallar í Vatnsmýri. Nefndin hefur frest til 1. júní til að skila niðurstöðum.
Tengdar fréttir

Allar brýr sáttaferlis brotnar með ákvörðun borgarinnar
Stuðningssamtök Reykjavíkurflugvallar, Hjartað í Vatnsmýri, skoruðu í dag á Alþingi að stöðva framkvæmdir Reykjavíkurborgar og Valsmanna á Hlíðarenda.

Sé ekki að hætt verði við Hlíðarendabyggð
Skrifað var í dag undir fyrstu verksamninga vegna umdeilds íbúðahverfis á Hlíðarenda, sem rísa á við flugbrautarenda Reykjavíkurflugvallar.

Framkvæmdir hefjast við Valssvæðið á mánudag
Mynd sem gengur um á meðal stuðningsmanna flugvallarins er af framkvæmdum vegna frárennslislagnar.

Heiftúðugar deilur fari í sáttafarveg
Katrín Júlíusdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, segir deilurnar um Reykjavíkurflugvöll orðnar svo heiftúðugar að þær verði að setja í sáttafarveg.

Hraðlest talin skila 40 til 60 milljarða ábata
Bygging og rekstur hraðlestar á milli Keflavíkurflugvallar og miðborgar Reykjavíkur er hagkvæm fjárfesting í einkaframkvæmd sem ekki kallar á bein opinber framlög.

Einkaaðilar komi að uppbyggingu í Keflavík
Ráðherra segir hugsanlega rétt að ríkið taki ekki á sig alla áhættu við uppbyggingu flugvallarins.

Keflavíkurflugvöllur eftir 25 ár
Flugstöðin verður stækkuð til norðurs og lögð verður ný norður-suður flugbraut vestan við flugvöllinn.

Ríkisvaldið bregðist við kverkataki borgarinnar
"Það verður að stöðva þessa óheillaþróun, sem lokun flugvallarins mun hafa í för með sér, áður en það verður of seint. Af framkvæmdum Valsmanna mun hljótast ómældur og óbætanlegur skaði,“ segir í bréfi sem samtökin Hjartað í Vatnsmýri sendu alþingismönnum og innanríkisráðherra í dag.

Ekki hægt að hliðra til Hlíðarendabyggð
Brynjar Harðarson, framkvæmdastjóri Valsmanna hf., segir ekki unnt að hliðra til Hlíðarendabyggð til að koma í veg fyrir að minnstu flugbraut Reykjavíkurflugvallar verði lokað.