Sport

Ekki viss um að Mayweather þori að mæta í hringinn

Boxararnir ásamt þjálfurum sínum. Roach þjálfar Manny og faðir Mayweather þjálfar soninn.
Boxararnir ásamt þjálfurum sínum. Roach þjálfar Manny og faðir Mayweather þjálfar soninn. vísir/getty
Þjálfari Manny Pacquaio, Freddie Roach, hefur verið duglegur að láta Floyd Mayweather heyra það síðustu vikur.

Skjólstæðingur hans á að berjast við Mayweather um helgina í Las Vegas en Roach er ekkert viss um að Mayweather láti sjá sig.

„Ég er í alvörunni að spá í hvort hann muni láta sjá sig í hringnum," sagði Roach.

„Ég held að enginn boxari sé hræddur en ég held að Floyd hafi aldrei viljað þennan bardaga. Hann hefur verið ótrúlega þögull í aðdragandanum sem er ólíkt honum."

Mayweather var nú ekki að láta þessi ummæli Roach koma sér í uppnám.

„Ég mæti. Hafið ekki áhyggjur af því. Ég reif kjaft í gamla daga en þessi bardagi selur sig sjálfur svo ég hef ekki þurft þess."

Bardaginn verður í beinni á Stöð 2 Sport aðfararnótt sunnudags. Tryggðu þér áskrift á 365.is.

Box

Tengdar fréttir

Manny verður flengdur

Pabbi Floyd Mayweather hefur varað Manny Pacquiao við því að Mayweather hafi aldrei æft eins vel fyrir nokkurn bardaga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×