Bjargaði sér úr haldi mannræningja með Pizza Hut appi - Myndband Samúel Karl Ólason skrifar 6. maí 2015 16:29 Vísir/AFP
Bandarísk kona sýndi mikið snarræði í gær þegar hún bjargaði sér og þremur börnum sínum úr haldi vopnaðs manns með Pizza Hut appi. Fyrrverandi kærasti Cheryl Treadway, Ethan Nickerson, hélt henni og börnum hennar á heimili hennar, en hann var vopnaður hníf. Hún fékk leyfi hjá honum til að panta pítsur fyrir þau og börnin. Cheryl pantaði pítsu með pepperóní og hvítlauk í gegnum app. Ethan hafði tekið símann af henni fyrr um daginn, en lét hana fá hann til að panta. Að því loknu tók hann símann aftur. Þar sem henni stóð til boða að skrifa upplýsingar um hvernig sendill ætti að koma pítsunni til þeirra skrifaði hún: „Please help. Get 911 to me“. Skilaboðin „911hostage help“ fylgdu einnig. Kokkurinn Alonia Hawk sá skilaboðin og hringdi yfirmaður hennar strax á lögregluna. Fjallað er um málið á wtsp.com. Sjónvarpsfrétt þeirra má sjá hér að neðan. Þegar lögreglan kom að húsi Cheryl tókst henni að hlaupa út með eitt barn, en tvö börn hennar og Ethan voru enn inni. Um 20 mínútum síðar tókst lögreglunni að ná honum úr húsinu án vandræða. Hann var handtekinn og hefur verið ákærður fyrir fjölda brota, þar á meðal fyrir frelsissviptingu. A #FL woman helped end a hostage situation by sending a message along with her @PizzaHut order http://t.co/KhtOrgU7Ab pic.twitter.com/e3BKGj5jZh— 10 News (@WTSP10News) May 6, 2015
Mest lesið „Þetta má aldrei gerast aftur“ Innlent Segir ákvörðun um kæru fyrir nauðgun tekna fyrir andlát flugmanns Innlent Hefur þrisvar komið að 13 ára syni sínum meðvitundarlausum Innlent Sjö Rúmenar gefa ekkert uppi um tugmilljóna króna þýfi Innlent Sextán ára dómur fyrir manndráp í Drangahrauni stendur Innlent Pilturinn áfram bak við lás og slá Innlent Jón Gnarr skráður í Viðreisn og ætlar á Alþingi Innlent Áfrýjaði engu nema ákvörðun um launin og málið fellt niður Innlent Rannsókn á byrlunar- og símamáli Páls skipstjóra úr sögunni Innlent Kristín Benediktsdóttir nýr umboðsmaður Alþingis Innlent Fleiri fréttir Ákærður fyrir mútuþægni og fjársvik Þingmaður sagði fólki frá Haítí að „drulla sér“ frá Bandaríkjunum Lögðu hald á síma borgarstjórans Sendir Patriot, svifsprengjur og skotfæri til Úkraínu Nákvæmasta kortið af Vetrarbrautinni til þessa Sýknaður eftir meira en 50 ár á dauðadeild Segir tortímingu eða uppgjöf Hezbollah einu lausnina Alríkisákærur gefnar út á hendur borgarstjóra New York Hótar að beita kjarnorkuvopnum gegn árás með hefðbundnum vopnum Vinna að þriggja vikna vopnahléi á milli Ísrael og Hezbollah Selenskí varar við „kjarnorku hörmung“ Loftárásum ætlað að undirbúa mögulega innrás „Virkið“ Vuhledar að falli komið Skutu skotflaug í Kyrrhafið í fyrsta sinn í rúm fjörutíu ár Manngerð hlýnun gerði flóðin í Evrópu tvöfalt líklegri en ella Unnu spellvirki á finnska þinghúsinu til að mótmæla móvinnslu Hútar vilja háþróaðar stýriflaugar frá Rússum Combs sakaður um enn eina kynferðisárásina Infowars á uppboð í nóvember upp í skuld við syrgjandi fjölskyldur Starfsmenn Boeing sagðir hafna tilboði um 30 prósent launahækkun Sakar Hezbollah um að leiða Líbanon „að hyldýpinu“ Sonur tilræðismannsins handtekinn vegna barnaníðsefnis Með þrjú flugmóðurskip á sjó í fyrsta sinn Enn einn leiðtogi Hezbollah felldur Þreföldun á endurnýjanlegri orkuframleiðslu innan seilingar Skutu viðvörunarskotum að norsku skipi í norskri lögsögu Demókratar uggandi yfir niðurstöðum skoðanakannana „Sterk Úkraína mun neyða Pútín að samningaborðinu“ Halda árásum áfram og beina sjónum að eldflaugastæðum Hezbollah Sviku út tugi milljóna með því að þykjast vera Brad Pitt Sjá meira