Lífið

Fyrri undanúrslitakvöldið: Öll lögin og sagan á bak við þau

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Sextán þjóðir etja kappi og komast tíu þeirra áfram.
Sextán þjóðir etja kappi og komast tíu þeirra áfram. vísir/epa
Fyrra undanúrslitakvöld Eurovision fer fram í kvöld. Sextán lönd etja kappi og komast tíu þeirra áfram. Helmingur atkvæða ræðst í símakosningu en hinn helmingurinn af atkvæðum dómnefndanna.

Hér má sjá lögin tuttugu sem taka þátt í kvöld.

Moldóva

I want your love

Eduard Romanyuta

Moldóva er tiltölulega ný í Eurovision. Moldóvar tóku fyrst þátt árið 2005 og hefur gengið ágætlega í keppninni. Flytjandinn heitir Eduard Romanyta og kemur frá Úkraínu. Hann er umkringdur leðurklæddum lögregluþjónum á sviðinu og sjálfur er hann ber að ofan í leðurbuxum.



Armenía

Face the shadow

Genealogy

Titli lagsins var breytt úr Don‘t deny í Face the shadow. Sagt er að það sé af pólitískum ástæðum í ljósi þess að hundrað ár eru liðin frá þjóðarmorði Tyrkja á Armenum. Hljómsveitin samanstendur af sex söngvurum frá fimm heimsálfum; Evrópu, Ameríu, Asíu, Afríku og Ástralíu. Öll eru þau af armenskum uppruna. 



Belgía

Loic Nottet

Rhythm Inside

Hinn nítján ára Loic Nottet skaust upp stjörnuhimininn eftir að hafa unnið hug og hjörtu Belga í söngkeppninni The Voice. Hann samdi og útfærði lagið og atriðið sjálfur. Loic vakti jafnframt mikla athygli á dögunum þegar hann söng lagið Chandelier með Sia. Sia deildi flutningi hans á Twitter og hrósaði honum fyrir frábæra frammistöðu.



Holland

Trijntje Oosterhuis

Walk Along

Trijntje er vel þekkt djasssöngkona í heimalandi sínu. Hún hefur unnið til fjölmargra verðlauna og hefur sungið með þekktum söngvurum á borð við Andrea Bochelli og Lionel Richi. Lagið er samið af Anouk sem tók þátt í Eurovision með laginu Birds árið 2013.



Finnland

Pertti Kurikan Nimipäivät

Aina Mun Pitää

Pönkhljómsveitin Pertti Kurikan Nimipäivät var stofnuð árið 2009. Hún samanstendur af fjórum karlmönnum sem allir eiga það sameiginlegt að glíma við einhvers konar fötlun. Hljómsveitin er afar vinsæl í Finnlandi en einnig víðar því þeir hafa ferðast um Bandaríkin, Bretland, Þýskaland, Noreg, Kanada og Holland. Lagið er rúmlega ein og hálf mínúta að lengd, og þar af leiðandi það stysta í keppninni.

Grikkland

Maria Elena Kyriakou

One Last Breath

María Elena fæddist í Kýpur og byrjaði að syngja ung að aldri. Einungis tólf ára vann hún söngkeppni barna í Kýpur en tók menntun fram yfir sönginn. Hún er með gráðu í grískum bókmenntum og hugvísindum og hóf störf sem prófessor árið 2006. Árið 2014 sigraði hún í söngkeppninni the Voice of Greece. María Elena er móðir þriggja drengja.



Eistland

Elina Born & Stig Rästa

Goodbye to Yesterday

Elina er eistnesk sveitastúlka sem alla tíð hefur elskað að syngja. Fyrir þremur árum síðan var hún uppgötvuð af hinum vinsæla lagahöfundi Stig Rasta, sem syngur með henni framlag Eistlands. Hann rakst fyrir tilviljun á myndband af henni syngja lagið Cruz með Christinu Aguilera og segist hafa heillast upp úr skónum. Hún segist hafa brostið í grát þegar hún sá skilaboð frá Stig á Facebook.



Makedónía

Daniel Kajmakosi

Autumn Leaves

Daníel er 31 árs popp- og rokksöngvari, laga- og textahöfundur og spilar á gítar og píanó. Hann er búsettur í Vín og var skírður í höfuðið á Daniel Popovic, sem var fulltrúi Júgóslavíu í Eurovision árið 1983. Hann hefur tekið þátt í söng- og hæfileikakeppnum í Austurríki, Makedóníu og Búlgaríu en árið 2013 rættist draumurinn. Þá heillaði hann alla með fagurri rödd sinni í X Factor Adria.



Serbía

Bojana Stamenov

Beauty never lies

Bojana er fædd árið 1986 og hefur sungið frá því hún var sjö ára. Hún lauk tónlistarnámi en hún segir söngferil sinn hafa hafist af alvöru eftir þátttöku hennar í Serbia‘s got talent. Skilaboð hennar til Eurovision-aðdáenda eru: „Aldrei gefast upp á því sem þið elskið eða þeim sem þið elskið, því ástin sigrar alltaf að lokum.“

Ungverjaland

Boggie

Wars for nothing

Boggie gaf út sína fyrstu plötu árið 2013. Hún vakti mikla athygli árið 2014 þegar hún gaf út myndband við lagið Nouveau Parfum. Það hefur nú fengið yfir þrjátíu milljón áhorf og er í þriðja sæti á Billboard djass listanum. Wars for nothing er friðarboðskapur sem Boggie samdi sjálf og segir hún textann hafa komið frá dýpstu hjartarótum.

Hvíta-Rússland

Uzari&Maimuna

Time

Uzari er söngvari og lagahöfundur, fæddur og uppalinn í Minsk. Hann tók fyrst þátt í Eurovision árið 2011 en þá sem bakraddasöngvari hjá Anastaiu Vinnikova. Hann hefur þrívegis tekið þátt í undankeppni fyrir Eurovision í sínu heimalandi, en draumurinn rættist loks í ár. Maimuna er þekktur fiðluleikari í Hvíta-Rússlandi sem gefið hefur út tvær plötur.



Rússland

Polina Gagarina

A million voices

Polina er vel þekkt í sínu heimalandi, bæði sem söng- og leikkona. Nokkrir lagahöfundar komu að laga- og textagerðinni, meðal annars frá Rússlandi, Svíþjóð og Ástralíu.



Danmörk

Anti Social Media

The way you are

Hljómsveitin Anti Social Media var stofnuð fyrir rúmum þremur mánuðum. Fjórir skipa sveitina, tveir þeirra einungis nítján ára gamlir. Þeir segjast virkir á samfélagsmiðlum, þrátt fyrir að nafnið gefi annað til kynna.



Albanía

Elhaida Dani

I‘m alive

Elhaida er 22 ára stjarna í heimalandi sínu, Albaníu, og Ítalíu. Hún vann The Voice í Ítalíu árið 2013 og hefur síðan þá látið mikið að sér kveða í tónlistarheiminum.



Rúmenía

Voltaj

De La Capat/ All Over Again

Hljómsveitin Voltaj hefur verið starfandi í yfir tuttugu ár. Lagið þeirra fjallar um erfiðar aðstæður í Rúmeníu þar sem mörg börn þurfa að horfa á eftir öðru foreldri sínu flytja nauðbeygðir til útlanda í leit að betri vinnu til að geta framfleytt fjölskyldunni. Lagið er sungið á ensku og rúmensku.



Georgía

Nina Sublatti

Warrior

Nina Sublatti stígur síðust á svið í kvöld. Hún kveðst vera mikill feministi og hlakkar til að leyfa Evrópu að heyra tónlistina sína, en lagið samdi hún sjálf.


Tengdar fréttir

„Líf mitt er á krossgötum í augnablikinu“

„Ég fór úr því að lifa mjög miklu einkalífi yfir í að allt í einu vita allir allt um mann. Svo ég þarf að hafa fyrir því að halda persónulegum hlutum fyrir mig,“ segir María Ólafsdóttir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.