Sport

Kolli enn ósigraður

Gunnar Kolbeinn Kristinsson.
Gunnar Kolbeinn Kristinsson. vísir/valli
Hnefaleikakappinn Gunnar Kolbeinn Kristinsson sigraði sinn þriðja atvinnumannabardaga í gær.

Þá mætti Gunnar Kolbeinn, oftast kallaður Kolli, Hvít-Rússanum Artsion Charniakevich í Finnlandi.

Bardaginn fór allar fjórar loturnar en allir dómarar bardagans dæmdu Kolla sigurinn.

Þetta var þriðji atvinnumannabardagi Kolla og hann er búinn að vinna þá alla. Áður hafði hann unnið tvo Letta.

Kolli er kominn í 455. sæti á alþjóða styrkleikalistanum í þungavigtinni en á listanum eru 1.090 boxarar.

Box



Fleiri fréttir

Sjá meira


×