Lífið

Nærmynd af Maríu: Var allt æfingatímabil Söngvaseiðs í gifsi á hækjum

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Heitasta stjarna Íslands og flytjandi framlags Íslendinga í Eurovision í ár er næm á tilfinningar annarra, traust vinkona, einlæg og yfirveguð samkvæmt vinum og ættingjum. Hér er að sjálfsögðu verið að lýsa engri annarri en Maríu Ólafsdóttur en hana ættu allir að þekkja í dag þrátt fyrir að hún hafi ekkert verið þekkt á síðasta ári.

María var í nærmynd í Íslandi í Dag fyrr í kvöld. Nærmyndina má sjá í heild sinni hér að ofan.

Lék Lovísu í Söngvaseiði þrátt fyrir fótbrot

Það kom vel í ljós hversu mikil keppnismanneskja María er þegar hún meiddist í upphafi æfinga á Söngvaseiði en lét það ekki slá sig útaf laginu.

„Hún fékk hlutverk Lovísu en svo er æfingatímabilið nýbyrjað og þá fótbrotnar hún í íþróttum,“ segir Anna Hjálmarsdóttir, móðir Maríu. Í kjölfarið tók við dramatískt óvissutímabil þar sem María var ekki viss um að fá að halda áfram. En María fékk að halda hlutverkinu. „Hún fékk að halda áfram og var allt æfingatímabilið í gifsi og á tveimur hækjum.“

„Hún kunni öll lögin og öll danssporin,“ segir Ardís Ólöf Víkingsdóttir um systur sína Maríu en María kom með henni á æfingar hjá bílskúrsbandi systur sinnar. María stal senunni og söng í hvítan hurðastoppara.

Í þættinum má sjá Maríu syngja í Vælinu í Verzlunarskólanum og í uppfærslu skólans á Draumi á Jónsmessunótt.

Ekkert sem María getur ekki sungið

„Hún er það góð að það er bókstaflega ekkert sem hún getur sungið,“ segir Ásgeir Orri Ásgeirsson, höfundur Unbroken, framlags Íslands í Eurovision í ár. Hann segir hana geta sungið rokk, blús og popp án þess að blikna.

Í þættinum hér að ofan er ekki aðeins rætt um kosti hennar heldur einnig galla en María er ekki fullkomin frekar en nokkur annar.



Hvaða Eurovision-lög eru best þetta árið? Taktu þátt í könnun Vísis hér.


Tengdar fréttir

Með einlægnina að leiðarljósi

„Hún kemur til dyranna eins og hún er klædd og það er þessi einlægni og heiðarleiki sem María hefur til að bera sem ég held að muni skila henni miklu,“ segir Anna Hjálmarsdóttir, móðir Maríu Ólafsdóttur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.