Lífið

María og Frikki Dór tóku lagið hjá sendiherra Íslands

Samúel Karl Ólason skrifar
Eurovision hópurinn íslenski fór í veislu hjá íslenska sendiherranum í Vín í gær.

Þar tóku þau María, Alma, Ásgeir, Friðrik Dór og Íris nokkur lög. Auðunn Atlason, sendiherra Íslands í Vín, sagði Eurovision snúast um gleði, hlýleika, hamingju, fjölbreytileika, jafnrétti og öll góð orð í heiminum.

Síðustu daga og vikur hefur íslenski hópurinn verið töluvert upptekinn og flakkað á milli viðburða í Vín. Ísland mun þó keppa í undankeppninni annað kvöld og svo vonandi í úrslitakeppninni á laugardagskvöldið.

Hvaða Eurovision-lög eru best þetta árið? Taktu þátt í könnun Vísis hér.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×