Lífið

Ný plata með OMAM komin út: Vínylútgáfan gölluð

Stefán Árni Pálsson skrifar
Beneath the Skin kom út í dag.
Beneath the Skin kom út í dag. vísir
Platan Beneath the Skin með íslensku hljómsveitinni Of Monsters And Men kom út á Íslandi í dag en mikil eftirvænting hefur verið eftir henni.

Hún er nú fáanleg í öllum helstu plötubúðum en vínilútgáfa plötunnar kom gölluð til landsins.

„Hljómurinn á plötunni er ekki lagi og getum ekki sent hana svona frá okkur,“ segir Haraldur Leví, útgefandi hjá Record Records.

„Þetta er virkilega vegleg útgáfa og mjög súrt að við getum ekki komið disknum út í öllu formi í dag.“ 

Vínylplatan átti einnig að koma út í dag en vegna gallans mun hún ekki koma út fyrr en í ágúst.  


Tengdar fréttir

Nanna eins og Björk

Útlit Nönnu Bryndísar Hilmarsdóttir söngkonu Of Monsters and Men í nýju myndbandi við lagið Crystals vekur athygli.

OMAM á tónleikum: Gatorade og ávextir baksviðs

Vísir hitti tvo meðlimi Of Monsters and Men skömmu áður en sveitin tróð upp í Portland í Bandaríkjunum í vikunni. Hljómsveitin er farin aftur í tónleikaferðalag sem mun að minnsta kosti standa yfir fram í nóvember.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.