Bíó og sjónvarp

Velgengni Hrúta heldur áfram: Dómnefndarverðlaun og áhorfendaverðlaun í Rúmeníu

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Grímar Jónsson er framleiðandi myndarinnar og Grímur Hákonarson leikstýrir henni.
Grímar Jónsson er framleiðandi myndarinnar og Grímur Hákonarson leikstýrir henni. Mynd/Vísir
Kvikmyndin Hrútar vann til tveggja verðlauna á TIFF eða Transilvania International Film Festival í kvöld. Kvikmyndin var eina myndin sem vann til verðlauna í tveimur flokkum.

Hrútar hlaut sérstök dómnefndarverðlaun og einnig áheyrendaverðlaunin. Velgengni Hrúta heldur því áfram en myndin hlaut nýlega verðlaun í Cannes. Sigurvegari dómnefndarverðlaunanna fær í verðlaun 1500 evrur sem eru 220 þúsund íslenskar krónur.

Hátíðin sem kennd er við Transylvaníu er yfirleitt haldin í borginni Cluj í Rúmeníu og er á vegum kvikmyndamiðstöðvarinnar þar í landi en TIFF er fyrsta alþjóðlega kvikmyndahátíðin í landinu.

„Já þetta var tvöfaldur sigur. Við fengum bæði áhorfendaverðlaunin og síðan svona special jury prize. Það er skemmtilegt að bæði dómnefndin var að fíla myndina og líka fólkið sem kom í bíó. Það er kannski sigurinn í þessu. Myndin höfðar greinilega til almennings en líka til þessa bransaliðs ef svo má kalla,“ segir Grímur Hákonarson, leikstjóri myndarinnar. En Vísir náði tali af honum í miðju kvöldverðarboði sem var haldið beint í kjölfar lokahátíðarinnar í kvöld. Hann segir Rúmena vera góða gestgjafa og að þeir kunni að halda uppi skemmtuninni

Theódór Júlíusson og Sigurður Sigurjónsson leika fúllynda bræður.Mynd/Brynjar Snær
En af hverju ætli Hrútar höfði til svo breiðs áhorfendahóps?

„Ætli Hrútar nái því ekki að vera bæði skemmtileg en líka listræn og djúp. Hún nær kannski bara öllum skalanum. Ég hugsa að það sé þannig að svona myndir sem vinna áhorfendaverðlaun séu svona myndir sem eru skemmtilegar.“ Hann segir að það séu þau skilaboð sem aðstandendur kvikmyndarinnar hafi verið að fá frá því á kvikmyndahátíðinni í Cannes.

„Hún getur bæði getur unnið þessi virtu verðlaun en hún selst svo vel líka. Sem er kannski eitthvað sem gerist ekki á hverjum degi, oft er þetta annaðhvort eða. En hún virðist ná til beggja aðila.“

Tólf kvikmyndir kepptu til verðlauna á hátíðinni og þar af voru tvær íslenskar myndir. Auk Hrúta keppti París Norðursins.

Transilvania Trophy eða Verðlaunabikar Transylvaníu-hátíðarinnar hlaut argentísk mynd sem heitir El Inciendo eða Eldurinn. Myndin fékk verðlaunafé upp á rúmlega tvær milljónir og tvö hundruð þúsund krónur.

Grímur, leikstjóri, hyggst halda með Hrúta á fleiri kvikmyndahátíðir á árinu.


Tengdar fréttir

Hrútar frumsýnd á Íslandi í kvöld

Verðlaunamyndin Hrútar verður frumsýnd hér á landi norður í Reykjadal í kvöld. Stöð tvö hitti sigurreifa menn á Reykjavíkurflugvelli í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×