Lífið

Stjörnuspá Siggu Kling - Ljón: Munt sjá hvað skiptir máli

Sigga Kling skrifar
Elsku tilþrifamikla ljón. Þú ert í svo mikilli þörf fyrir að fá niðurstöðu úr öllum þessum hugsunum sem dvelja í þínum kraftmikla heila. Þú verður að athuga að þú ert búið að fá svör við mörgu en þrjóskast samt við að halda áfram að gera það sem þú ákvaðst í upphafi að gera. 

Það eru svo miklar tilfinningar í öllu að þetta er eins og sápuópera, Glæstar vonir eða eitthvað þvíumlíkt. Þetta sumar sem þú ert að fara í verður mjög óvenjulegt og gefur þér spil á hendi, sem þú veist ekki alveg hvernig þú átt að spila úr. Þér finnst alltaf gaman að vera í keppni en ljónin þola ekki að tapa, ekki séns. Svo útkoman er að ef þú slakar á og hættir að reyna að stjórna öllu, þá mun þér birtast sýn um hvernig þú átt að gera þetta allt saman.

Það verður mikið um hreiðurgerð og frjósemi og ég minni því á að gera varúðarráðstafanir, ef þetta er eitthvað sem þér finnst ekki fara þér. Þú átt eftir að græða einhverja peninga sem eiga eftir að gleðja þig alveg óstjórnlega. Þú lagfærir skuldaborðið og það verður svo létt yfir þér.

Þú verður tengdari fjölskyldunni og átt eftir að sjá hvað skiptir máli. Ef þú hefur verið haldið frestunarhyggju undanfarna mánuði þá verður þú að standa upp og ganga frá hlutunum. Það mun breyta allri orkunni í kringum þig. Núna er rétti tíminn.

Mottó:

Taktu lífinu ekki of alvarlega, þú kemst ekki lifandi frá því.

Fræg ljón: Ásdís Rán fegurðarbomba, Geir Ólafsson stórsöngvari, Þórunn Antonía alheimsstjarna, Jón Óttar Ragnarsson, athafna- og fjölmiðlamaður, Jennifer Lopez söngkona, Sigríður Diddú Hjálmtýsdóttir söngkona. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.