Sport

Hjördís Rósa úr leik

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Birkir og Hjördís eru Íslandsmeistarar í tennis.
Birkir og Hjördís eru Íslandsmeistarar í tennis. Vísir
Hjördís Rósa Guðmundsdóttir er úr leik í einliðaleik kvenna í tennis á Smáþjóðaleikunum í Reykjavík. Hún tapaði fyrir Kathinka Von Deichmann frá Liechtenstein.

Von Deichmann er næststerkasti keppandi mótsins samkvæmt styrkleikalista og í 393. sæti á heimslistanum í tennis.

Það var því ljóst að Hjördís var að keppa við öflugan keppanda sem vann að lokum öflugan sigur, 6-0 og 6-2.

Birkir Gunnarsson keppir við Sergios Kyratzis frá Kýpur í 2. umferð einliðaleiks karla í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×