Hlín segir Malín hafa skipulagt fjárkúgunina með sér
Hlín Einarsdóttir, sem hefur játað að hafa reynt að kúga fé út úr Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni; segir Malín Brand, systur sína; hafa logið því til að hún hafi verið saklaus og ómeðvitaður ökumaður í ferð hennar eftir fénu. Hlín segir hana hafa tekið fullan þátt í fjárkúguninni frá upphafi til enda. Hlín segir þær systur ekki hafa rætt saman eftir að málið komst í hámæli.
Hlín er í viðtali við DV, sem vekur nokkra athygli því útgefandi blaðsins er fyrrverandi sambýlismaður Hlínar, Björn Ingi Hrafnsson; en kúgunin gekk út á að því var haldið fram að fyrir lægju gögn sem sönnuðu að Sigmundur Davíð hefði haft beina aðkomu að fjármögnun Björns Inga þá er hann keypti DV. Fyrirsögn blaðsins er tilvitnun í Hlín þar sem hún segist glíma við geðraskanir. Hlín segist hafa verið lokuð inni á geðdeild í viku eftir að málið komst í hámæli. Þá er vitnað til orða hennar þess efnis að hún vildi að hún gæti tekið allt til baka sem hún gerði.
Uppfært: 10:00
Rétt er að taka fram að í þessari frétt Vísis er fjallað um efni fjárkúgunarinnar; og er þar ekki talað um beina aðkomu forsætisráðherra að fjármögnun á DV, heldur milligöngu. Eða, eins og segir í fréttinni: „Samkvæmt heimildum Vísis fólst hótunin í því að gögn um aðkomu Sigmundar eða aðilum tengdum honum við lánafyrirgreiðslu úr MP banka til Pressunnar yrðu gerð opinber. Heimildir Vísis herma að meint aðkoma ráðherra hafi átt sér stað eftir að hann tók við embætti sem forsætisráðherra, árið 2013.“
Tengdar fréttir
Systurnar Malín og Hlín handteknar vegna tilraunar til fjárkúgunar á hendur forsætisráðherra
Samkvæmt upplýsingum fréttastofu sendu þær bréf til Sigmundar þar sem þess var krafist að hann myndi reiða fram nokkrar milljónir króna.
Malín Brand: Ætlaði að keyra í burtu er ljóst var í hvað stefndi
Fullyrðir að hún hafi ekki komið nálægt bréfasendingunni og sjálfri fjárkúguninni. Hún harmar að hafa blandast inn í málið.
Hlín Einars vill komast í tölvupóstinn sinn
Hlín Einarsdóttir segist hafa sagt Birni Inga Hrafnssyni frá meintri nauðgun.
„Engin venjuleg saga sem þær eiga þessar systur“
Friðrika Benónýsdóttir tók viðtal við Hlín Einarsdóttur, sem birtist í Stundinni í dag, tveimur vikum fyrir handtökuna á Völlunum á föstudag. Hlín lýsir heilaþvætti sem hún varð fyrir í Vottum Jehóva og óútskýrðu fráfalli móður sinnar.
Malín og Hlín játa að hafa reynt að kúga fé úr forsætisráðherra
Voru handteknar sunnan Vallahverfis í Hafnarfirði þar sem milljónum átti að hafa verið komið fyrir í tösku.
Malín Brand kveðst hafa dregist inn í fjárkúgunina
Malín Brand og Hlín Einarsdóttir voru handteknar á föstudag fyrir að reyna að kúga fé af forsætisráðherra. Húsleit var gerð á heimili þeirra beggja en Malín segist hafa dregist inn í atburðarás sem Hlín systir hennar hafi hrundið af stað.