Lífið

Fylgstu með Bíladögum á Akureyri

Stefán Árni Pálsson skrifar
Bíladögum líkur á laugardagskvöldið.
Bíladögum líkur á laugardagskvöldið.
Bíladagar fara nú fram á Akureyri og nær hátíðin hámarki á laugardaginn. Bíladagar eru einn stærsti íþróttaviðburður sem haldinn er á Íslandi og er einskonar árshátíð allra áhugamanna um mótorsport.

Bílaklúbbur Akureyrar býður upp á tjaldsvæði á félagssvæði sínu þessa daga þar sem gestir geta fengið gúmmífnykinn beint í æð. Á svæðinu er einnig boðið upp á opnar æfingarbrautir fyrir alla gesti Bíladaga sem og Go-Kart leigu.

Hér að neðan má fylgjast með gestum hátíðarinnar en íslenska appið Watchbox gerir okkur það kleift. Með appinu getur hver sem er tekið myndir og myndbönd, sent inn á rásina #biladagar og þannig verður til sameiginleg saga af hátíðinni.

Mikill fjöldi sækir þessa hátíð á hverju ári og því má búast við töluvert af myndböndum. Watchbox er frítt í App Store.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×