Lífið

Rita Ora og Nick Grimshaw koma inn í dómnefndina í X-Factor

Stefán Árni Pálsson skrifar
Nick Grimshaw, Cheryl Fernandez-Versini, Rita Ora og Simon Cowell.
Nick Grimshaw, Cheryl Fernandez-Versini, Rita Ora og Simon Cowell. vísir
Nú liggur fyrir hvaða dómarar verða í dómnefnd í næstu þáttaröð X- Factor UK. Simon Cowell og Cheryl Fernandez-Versini verða áfram á sínum stað en þau Rita Ora og Nick Grimshaw koma einnig inn.

Louis Walsh og Mel B eru bæði hætt í dómnefnd en þetta er einn allra vinsælasti raunveruleikaþátturinn í heiminum í dag.

Þættirnir hafa verið á dagskrá Stöðvar 3 og notið mikilla vinsælda. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×