Lífið

Ed Sheeran heyrði unga stúlku syngja lag eftir sig: Gekk upp á svið og tók undir

Stefán Árni Pálsson skrifar
Mikill fjöldi var inn í verslunarmiðstöðinni og brutust út mikil fagnaðarlæti þegar Sheeran var mættur á svæðið.
Mikill fjöldi var inn í verslunarmiðstöðinni og brutust út mikil fagnaðarlæti þegar Sheeran var mættur á svæðið. vísir/youtube
Breski tónlistarmaðurinn Ed Sheeran var á dögunum staddur í verslunarmiðstöð í Kanada þegar hann heyrði unga stúlku syngja lag eftir hann.

Sheeran ákvað því að ganga upp að Sydney Bourbeau, 13 ára aðdáenda, og tók undir með henni þegar hún sögn smellinn Thinking Out Loud.

Mikill fjöldi var inn í verslunarmiðstöðinni og brutust út mikil fagnaðarlæti þegar Sheeran var mættur á svæðið.

Hér að neðan má sjá myndband af atvikinu og fyrir neðan það er hægt að sjá myndband við lagið sjálf.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×