Ísland vann frábæran 2-1 sigur á Tékklandi í undankeppni EM 2016 og tók þar með stórt skref átt að því að komast í lokakeppnina í Frakklandi.
Með sigrinum komst Ísland upp í efsta sæti riðilsins og er líklega búið að tryggja sig inn í annan styrkleikaflokk þegar dregið verður í undankeppni HM 2018.
Niðurstaðan var frábær í kvöld en hér fyrir neðan má líta einkunnagjöf blaðamanna Vísis fyrir leikmenn Íslands.
Hannes Þór Halldórsson, markvörður 6
Mætti hárprúður til leiks og hárið var ekki að flækjast fyrir honum. Reyndi lítið á hann. Öruggur í sínum aðgerðum. Gat lítið gert við markinu.
Birkir Már Sævarsson, hægri bakvörður 7
Stóð vaktina vel í vörninni. Yfirvegaður og ekkert óðagot. Hleypti engu í gegnum sig. Tók takmarkaðan þátt sóknarleiknum.
Kári Árnason, miðvörður 7
Klikkar helst aldrei í landsleikjum. Étur alla skallabolta og vinnur flest návígi. Leiðtogi í sterkri vörn.
Ragnar Sigurðsson, miðvörður 8
Sterkur fyrir, tímasetti tæklingar vel. Lét ekki teyma sig í ógöngur. Öflugur í loftinu. Hann og Kári traustir sem fyrr.
Ari Freyr Skúlason, vinstri bakvörður 7
Öflugur í vörninni. Eldfljótur og átti nokkrar ágætar sendingar og svo eina gullsendingu er Ísland jafnaði 1-1.
Birkir Bjarnason, hægri kantmaður 5
Ekki hans besti dagur. Missti boltann of oft og náði lítið að ógna. Lét þó finna fyrir sér og vann mikla vinnu sem fyrr.
Aron Einar Gunnarsson, miðjumaður 8 - MAÐUR LEIKSINS
Fyrirliðinn frábæri jafnaði með stórglæsilegu skallamarki. Var sem brimbrjótur á miðjunni og tengdi liðið saman. Fórnaði sér hvenær sem hann gat, vann marga bolta og sinnti varnarvinnunni af miklum myndarskap. Sannur leiðtogi.
Gylfi Þór Sigurðsson, miðjumaður 8
Í öðrum klassa en aðrir miðjumenn. Frábær á boltann og alltaf hætta í kringum hann. Óheppinn að skora ekki úr aukaspyrnu. Virðist ekki geta spilað slakan landsleik. Ótrúlega duglegur og óþreytandi í að pressa miðjumenn Tékka.
Emil Hallfreðsson, vinstri kantmaður 5
Var mjög kröftugur framan af fyrri hálfleik og vann nokkra bolta. Náði ekki að fylgja því eftir. Tapaði boltanum í fyrsta marki leiksins. Gaf sig allan í verkefnið og hætti aldrei.
Jóhann Berg Guðmundsson, framherji 6
Hörkuduglegur en kom lítið út úr allri vinnunni því miður. Gafst aldrei upp.
Kolbeinn Sigþórsson, framherji 7
Óþreytandi dugnaðarforkur. Alltaf með pressu. Skilaði bolta vel af sér. Nýtti færið sitt og skoraði. Yfirvegaður og kláraði með stæl. Má aldrei líta af honum.
Varamenn:
Jón Daði Böðvarsson (Kom inn á fyrir Emil Hallfreðsson á 63. mínútu) 6
Duglegur og átti sinn þátt í sigurmarki Íslands.
Rúrik Gíslason (Kom inn á fyrir Kolbein Sigþórsson á 93. mínútu) -
Kom inn á í blálokin.

