Innlent

Nauðlentu við Hellisheiði

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Vélinni var lent við virkjanasvæðið við Hverahlíð, en þar hafa verið settar upp svokallaðar þjónustubrautir.
Vélinni var lent við virkjanasvæðið við Hverahlíð, en þar hafa verið settar upp svokallaðar þjónustubrautir. vísir/gva
Nauðlenda þurfti lítilli fis flugvél við virkjunarsvæðið við Hverahlíð á þriðja tímanum í dag. Talið er að það hafi verið vegna skorts á eldsneyti. Vélinni hlekktist á við lendingu og sakaði einn, en minniháttar að sögn lögreglu. Tveir voru í vélinni og hafa þeir báðir verið fluttir á slysadeild til aðhlynningar.

Skemmdir á vélinni liggja ekki fyrir að svo stöddu en málið er nú í rannsókn lögreglu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×