Innlent

Rúta og fólksbíll skullu saman

Samúel Karl Ólason skrifar
Lögreglan lokaði veginum vegna slyssins.
Lögreglan lokaði veginum vegna slyssins. Vísir/Sveinn
Rúta og fólksbíll skullu saman á hringveginum skammt austan við Akureyri í morgun, nærri Veigastaðafossi. Þrír erlendir ferðamenn sem voru í fólksbílnum voru fluttir á sjúkrahús. Einn var meira slasaður en hinir, en ekki alvarlega. Hinir tveir voru með minniháttar meiðsl.

Rútan var þéttsetin erlendum ferðamönnum en veginum var lokað um tíma vegna slyssins.

Þegar þetta er skrifað er lögreglan enn að störfum og veginum enn lokað, en lögreglan á Akureyri segir að það verði ekki mikið lengur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×