Innlent

Skýrslan breytir engu um baráttuna fyrir flugvelli í Vatnsmýri

Jakob Bjarnar skrifar
Viðbrögð minnihlutans í borginni við skýrslu Rögnunefndarinnar eru blendin.
Viðbrögð minnihlutans í borginni við skýrslu Rögnunefndarinnar eru blendin.
Rögnunefndin hefur skila niðurstöðum sínum og þar segir að hagkvæmasti kosturinn til uppbyggingar á nýjum flugvelli á höfuðborgarsvæðinu sé Hvassahraun, sunnan Hafnarfjarðar.

Vísir spurði Sveinbjörgu Birnu Sveinbjörnsdóttur oddvita Framsóknarmanna og flugvallarvina hvort þetta þýddi ekki einfaldlega það að helsta kosningamálið væri þar með afgreitt og þá rétt að snúa sér að einhverju öðru, en því að vera vinur flugvallarins? Sveinbjörg Birna hélt ekki. Hún segist ekki búin að lesa skýrsluna í þaula en niðurstöðuna.

Breytir engu

„Nefnilega ekki,“ segir Sveinbjörg Birna. „Afstaða okkar Framsóknar og flugvallavina er jafn skýr nú og hún hefur verið áður. Við styðjum áframhaldandi veru flugvallarins í Vatnsmýrinni í óbreyttri mynd. Þarna er lykilhugtak „í óbreyttri mynd“. Vegna þess að Rögnunefndinni var ekki falið að leggja mat á hagkvæmni þess að halda Reykjavíkurflugvelli í núverandi mynd. Heldur átti hún, og þetta er á blaðsíðu 11 í skýrslunni, aðeins að athuga hvort önnur flugvallastæði en Vatnsmýrin kæmi til greina undir flugvallarekstur á höfuðborgarsvæðinu. Þess vegna, vegna þess að svo taka þeir fjórar breytur; og skoða Vatnsmýrina í breyttri mynd og leggja mat á hann sem valkost versus hina fjóra kostina en ekki í óbreyttri myndi. Við höfum, frá því við komum inn í borgarstjórn, alltaf greitt atkvæði gegn öllum mögulegum breytingum á Reykjavíkurflugvelli, og sett athugsemd í þá veru að við séum ekki að bíða eftir niðurstöðum Rögnu-nefndarinnar. Vegna þess að það lá alltaf ljóst fyrir í skilgreiningum á verkefnum hópsins að hann væri ekki að skoða áframhaldandi veru flugvallarins í óbreyttri mynd.“

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir borgarfulltrúi Framsóknar og flugvallarvina áréttar svo þessa skoðun á Facebooksíðu sína, eins og sjá má neðar.

Ætla að standa „keikréttar“

Sveinbjörg Birna jánkar því að skilja beri hana sem svo að skýrslan breyti sem sagt engu um efni deilunnar um flugvöll í Vatnsmýrinni. „Hún tekur á því að skoða aðra kosti en Reykjavíkurflugvöll. En ekki í núverandi mynd, þetta hef ég vitað allan tímann. Vita allir sem lásu erindisbréf hópsins, en slegið er ryki í augu fólks að það væri verið að meta aðra kosti versus flugvöllinn í núverandi mynd.“

Þannig að skýrslan breytir í sjálfu sér engu um átökin um flugvöllinn í Vatnsmýrina?

„Við stöndum keikréttar og höldum áfram að berjast fyrir því að flugvöllurinn verði áfram þar sem hann er núna. Langtímahagsmunum höfuðborgarsvæðisins gegn skammtímagróðasjónarmiðum um uppbyggingu á svæðinu.“

Vill leggja áherslu á rekstraröryggi flugvallarins

Sjálfstæðismenn í borginni hafa, í hverri einustu bókun sem þeir hafa gert, slegið þann varnagla að þeir vilji bíða eftir niðurstöðu Rögnunefndarinnar. Því er ekki úr vegi að heyra sjónarmið. „„Sem stendur þá læt ég nægja að segja að það er gott að skýrslan er komin út,“ segir Halldór Halldórsson, oddviti Sjálfstæðismanna í borginni.

„Ég á hins vegar eftir að kynna mér hana miklu betur. Að lokum þá vil ég leggja gríðarlega áherslu á að rekstraröryggi flugvallar í Vatnsmýrinni sé tryggt áfram því allar þessar áætlanir munu taka tíma.“

Afstaða Framsóknar og flugvallarvina er jafnskýr nú sem áður, við styðjum áframhaldandi veru Reykjavíkurflugvallar í...

Posted by Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir on 25. júní 2015

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×