Lífið

BYRTA frumsýnir nýtt myndband

Stefán Árni Pálsson skrifar
Myndbandið var unnið af Louise McLaughin.
Myndbandið var unnið af Louise McLaughin.
BYRTA frumsýndi um helgina tónlistarmyndband við lagið Aftur og aftur. Myndbandið var unnið af Louise McLaughin sem eitt af útskriftarverkefni hennar við Den Danske Filmskole.

Danska kvikmyndagerðakonan Louise McLaughin hefur lengi verið heilluð af náttúrufegurð Íslands og færeysku hljómsveitinni BYRTU sem hún leiddi síðan saman í útskriftarverkefni sínu í vor.

Þá fékk hún einnig til liðs með sér íslenska leikara, þau Stefán Hall Stefánsson, Halldóru Rut Baldursdóttur og Eið Breka Bjarkason.

Myndbandið var leikstýrt af Heiðríki Á Heygjum og var í framleiðslu Rakelar Garðarsdóttur. Sjá má myndbandið hér að neðan. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×